1224 fundur
Bæjarráðs Grindavíkur
haldinn á skrifstofu bæjarstjóra,
miðvikudaginn 13. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson, Gunnar Már Gunnarsson, Björn Haraldsson, Ólafur Örn Ólafsson, Hörður Guðbrandsson (HG),
Fundargerð ritaði: Ólafur Örn Ólafsson , bæjarstjóri
Formaður óskaði eftir að taka á dagskrá með afbrigði samning við Eyjólf Bragason vegna undirbúningsvinnu við menntaskóla í Grindavík.
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. 1001014 - Ósk um aðstöðu í útistofu við Grunnskóla.
Formaður UMFG Gunnlaugur Hreinsson og Gunnar Jóhannesson komu til fundar við bæjarráð. Samþykkt að UMFG fá til umráða aðra bláu útistofuna við grunnskólann til afnota. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að endurskoða samning við UMFG.
2. 0811051 - Grindavík- experience
Til fundar komu Sigurður Hilmarsson og Benný Ósk Jökulsdóttir. Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
3. 1001027 - Vegna refaveiða á uppgjörstímabilinu 1.september 2009 til 31. ágúst 2010.
Bæjarráð fagnar því að ríkið skuli hafa endurskoðað ákvörðun sína um að hætta þátttöku í refaveiðum.
4. 1001026 - Útsending á vef UMFG frá bæjarstórnarfundum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5. 1001024 - Útboð á hreinlætisvörum fyrir Grindavíkurbæ
Bæjarráð samþykkir tillögu upplýsinga- og þróunarfulltrúa en óskar eftir að kannað verði með hvort ráðlegt sé að bjóða klór fyrir sundlaug út sérstaklega.
6. 1001023 - Þriggja ára áætlun 2011-2013
Lagt fram til kynningar. Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
7. 1001022 - Vatnsvernd og vatnstöku í lögsögu Grindavíkur
Bæjarráð óskar eftir þátttöku svæðisskipulags á Reykjanesi í kostnaði við greinagerð á vatnsvernd og vatnstöku í landi Grindavíkur, þar sem það þarf að ligga fyrir í svæðisskipulagi.
Vísað til S.S.S.
8. 1001021 - Atvinnuátaksverkefni í skógrækt.
Bæjarráð samþykkir erindið og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.
9. 1001020 - Ungt fólk til athafna.
Lagt fram.
10. 1001018 - Umsókn um styrk, Klassart.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
11. 1001016 - Aðstoð vegna Ljósmyndasafns Grindavíkur.
Bæjarráð tekur vel í að nota aðstöðu bæjarins í Kvennó vegna ljósmyndasafns þegar engin starfsemi er í húsinu.
12. 1001015 - 4.fundur Festisnefndin.
Bæjarráð þakkar nefndinni fyrir vinnu sína og tillögur. Boðið verður til fundar síðar.
13. 1001012 - Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.
Bréfið lagt fram. Vísað til félagsmálastjóra.
14. 1001011 - Húsaleigubætur - Uppreiknuð eignamörk.
Bréfið lagt fram. Fram kemur að viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreiknings húsaleigubóta er kr. 5.918.453.
15. 1001009 - Sameignarsamningur að óskiptu landi Jarngerða og Hópstorfu
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjóra falið að vinna að smávægilegum breytingum.
16. 0903100 - Gunnuhver - Betrumbætur á aðgengi
Lagt fram.
17. 1001005 - Varðveisla og verndun hússins Bakka.
Óskari Sævarssyni boðið til næsta fundar bæjarráðs, vegna hússins Bakka.
18. 1001004 - Ósk S.V.F.G. um styrk
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
19. 1001003 - Aukið samstarf innan HS Veitna hf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga.
20. 1001001 - Starfsleyfi Hópsskóla.
Skólastjóra falið að fara yfir skýrsluna.
21. 0912047 - Samgönguáætlun 2009-2012.
Bæjarstjóra falið að klára viðskiptaáætlun.
22. 0912041 - 605.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 14.desember 2009.
Lagt fram.
23. 0906007 - Húsnæðismál Tónlistarskóla Grindavíkur.
Bæjarráð ítrekar fyrri ákvörðun um að tónlistarskóli fái aðstöðu í bláu útistofunni við grunnskólann sem er nær Víkurbraut.
24. 0910044 - Félag handverksfólks í Grindavík
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu. Formanni bæjarráðs og bæjarstjóra falið að leita annarra lausna í samráði við stjórn handverksfélags Grindavíkur.
25. 1001029 - Ósk um niðurfellingu gatna- og byggingarleyfisgjalda vegna Bakkalág 17.
Bæjarráð samþykkir að veita 60% afslátt af gatnagerðargjaldi vegna óvenju mikilla jarðvinnu við undirbúning vegna uppdælingar inn á umrædda lóð frá fyrri tíð. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um það jarðvegsmagn sem þarf að moka í burtu.
Bæjarráð sér sér ekki fært að veita afslátt af byggingarleyfisgjaldi.
26. 0901034 - Svæðisskipulag á Reykjanesi
Bæjarráð tilnefnir Ólaf Örn Ólafsson í nefndina.
27. 0912064 - 5 ára deild í Hópsskóla
Bæjarráð tekur undir með nefndinni og telur ekki tímabært að bjóða upp á skólavist fyrir 5 ára börn í grunnskóla.
Bókun:
Til að undirstrika tillöguna sem samþykkt var í bæjarráði á fundi nr. 1220 þá hljóðaði sú tillaga að fela ætti skólamálafulltrúa í samráði við skólastjóra Hópsskóla að SKOÐA 5 ára leikskóladeild innan Hópsskóla en ekki að bjóða upp á án þess að skoða málið gjörla.
Gunnar Már Gunnarsson.
Bókun:
Fræðslunefnd hefur þegar kynnt sér málið og komist að niðurstöðu.
Meirihluti D, S og VG lista.
28. 0910068 - Uppbygging og innra starf Hópsskóla.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur nefndarinnar varðandi umferð barna yfir Víkurbraut í og úr skóla. Bæjarstjóra falið að fylgja eftir áframhaldandi undirbúningi að undirgöngum með Vegagerðinni.
29. 0809016 - Samningur um verkefnisstjórnun vegna framhaldsskóla í Grindavík
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi frá samningi þar sem greiðslu til Eyjólfs Bragasonar vegna vinnu við undirbúning menntaskóla frá apríl til ársloka 2009 samsvari 3 mánaða vinnu.
Fundagerðir lagðar fram til kynningar.
30. 1001001F - Menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur - 63
31. 0912008F - Fræðslu- og uppeldisnefnd Grindavíkur - 58
32. 0912007F - Ferða- og atvinnumálanefnd Grindavíkur - 10
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:20
Hörður Guðbrandsson (S)
Sigmar Eðvarðsson (D)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Garðar Páll Vignisson (V)
Björn Haraldsson (V)
Petrína Baldursdóttir (B)
Gunnar Már Gunnarsson (B)






