509. fundur skipulags- og byggingarnefndar

 

 

 

 

 

 

 

509. fundur

Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur var

haldinn  á skrifstofu byggingafulltrúa,

mánudaginn 4. janúar 2010 og hófst hann kl. 17:00

 

 

Fundinn sátu:

Gísli Jóhann Sigurðsson, Svanþór Eyþórsson, Unnar Á Magnússon, Sigurður A Kristmundsson (SAK), Einar Jón Ólafsson. Jafnframt sat fundinn Bjarni Rúnar Einarsson formaður nefndar um endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur

 

Fundargerð ritaði:  Ingvar Þ. Gunnlaugsson , Forstöðumaður Tæknideildar

 

Dagskrá:

 

1.    0912157 - Umsókn um byggingarleyfi vegna byggingar iðnaðarhúss við Bakkalág 17

H.H. Smíði óskar eftir byggingarleyfi fyrir fiskverkunarhús á 2 hæðum við Bakkalág 17.

Nefndin samþykkir erindið, en vísar erindinu til hafnarstjórnar til umsagnar.

2.    0904007 - Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur

Unnið er að endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkur starfshópur/nefnd hefur unnið að málinu og leggur nú fyrir nefndina stöðuna á endurskoðuninni sem og kostnaðar- og tímaáætlun vegna vinnu við endurskoðunina.

Nefndin samþykkir kostnaðar og tímaáætlun vegna endurskoðunar aðalskipulagsins.

3.    1001008 - Umsókn um leyfi til niðurrifs byggingar að Ægisgötu 4 í Grindavík

Í upphafi óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði á dagskrá.

Samþykkt samhljóða


Samherji hf. óskar eftir leyfi Grindavíkurbæjar til að rífa og fjarlægja hluta af húsnæði félagsins við Ægisgötu 4 í Grindavík. Um er að ræða frystigeymslu og húsnæði sambyggt henni. Hluti af húsinu var fjarlægður fyrir nokkrum árum eftir bruna. Ef til niðurrifs kemur verður lögð áhersla á að frágangur svæðissins verði snyrtilegur.

Nefndin samþykkir byggingaleyfi fyrir niðurrifi, en bendir jafnframt á að sækja þarf um starfsleyfi fyrir niðurrifi hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.





 



Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   18:10

 

___________________________                ___________________________

 

 

 

 

___________________________                ___________________________    

 

 

 

___________________________                ___________________________

 

 

 

 

___________________________                ___________________________