1223. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 30. desember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Petrína Baldursdóttir, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Björn Haraldsson, Hörður Guðbrandsson (HG),
Fundargerð ritaði: Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri
Dagskrá:
Formaður óskaði eftir að taka á dagskrá með afbrigði tilboð í biðskýli við Reykjanesbraut.
Samþykkt samhljóða.
1. 0912100 - Álit Samkeppniseftirlitsins,Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir.
Lagt fram.Vísað til upplýsingar til tæknisviðs.
2. 0912068 - Kynning á klúbbnum Geysi og ósk um fjárstyrk.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.
3. 0912066 - Varðar dælubrunn við hafnarhús
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.
4. 0912059 - Könnun á innleiðingu og framkvæmd laga um leikskóla og grunnskóla.
Vísað til skólamálafulltrúa.
5. 0912057 - Heildarsamningur við Öryggismiðstöðina
Frestað. Bæjarstjóra falið að vinna í málinu.
6. 0912056 - Minnisblað viðhaldsáætlunar yfir gatnakerfi, unna af Hlaðbær Colas hf.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
7. 0912055 - Sjóvörn
Bæjarráð samþykkir erindið og felur hafnarstjóra að sækja um endurgreiðslu.
8. 0912054 - Beiðni um greiðslu reiknings vegna Saltfiskseturs
Bæjarráð samþykkir erindið.
9. 0912053 - Tillaga fjárhagsnefndar S.S.S. að fjárhagsáætlunum.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun SSS og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar bæjarins.
10. 0912052 - Samningur um vöktun fjárhólfs
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir árið 2010 og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.
11. 0912051 - Tilkynning um ráðstöfun á landi og jarðhitaréttindum HS Orku hf.
Afgreiðslu frestað. Bæjarráð óskar eftir áliti lögmanns.
12. 0912050 - Álit Samkeppniseftirlitins, Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
13. 0912049 - Úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2010.
Bæjarráð felur skólamálafulltrúa að fara yfir listann, þar sem listinn er ekki tæmandi. Fram kemur að fjárhæð til nýbúafræðslu 2010 er kr. 1.870.000.
14. 0912048 - Samkomulag 2007 um árlega uppfærslu grunnfjárhæða vegna fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir fjárhæðir sem fram koma og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.
15. 0912047 - Samgönguáætlun 2009-2012, viðskiptaáætlun hafnarsjóðs.
Bæjarráð felur fjármálastjóra og hafnarstjóra að gera viðskiptaáætlun og senda Siglingastofnun.
16. 0912046 - Áætluð úthlutun framlags sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2010.
Bæjarráð felur skólamálafulltrúa að fara yfir listann, þar sem listinn er ekki tæmandi. Fram kemur að fjárhæð til sérþarfa fatlaðra nemenda árið 2010, er kr. 17.220.000.
17. 0912038 - Tengivegur á milli Austurvegar og Suðurstrandarvegar.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar hvort hægt sé að hliðra veginum til.
18. 0912033 - Vetvangsferð um Suðurnesin þann 18. nóvember 2009
Lagt fram. Bæjarráð þakkar góðar ábendingar.
19. 0910065 - Gæsla vegna íþróttakennslu í grunnskólanum
Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.
20. 0904048 - Grindavík Aðhlynning og sókn í kreppu.
Bæjarráð þakkar ábendingarnar.
21. 0809002 - Bréf dags 12.08.08. Vegur yfir lóð og sjóvarnargarðar
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um stærð lóðar og nærliggjandi lóða.
22. 0909001 - Glerborg, aðkoma Grindavíkurbæjar v/flutnings
Samningurinn samþykktur með tveimur atkvæðum. Petrína greiðir atkvæði á móti.
Bókun vegna fjárveitingu til Glerborgar:
Fulltrúi B-lista hefur skilning á því að bæjarfélag þurfi að hafa ákveðnar reglur um aðkomu bæjarins að fyrirtækjum í rekstri sem vilja hafa starfstöð sína í Grindavík. Þess vegna var í tíð fyrri meirihluta B og S lista búnar til reglur um hvernig skyldi staðið að aðkomu bæjarins vegna fyrirtækja í rekstri í Grindavík. Settar voru reglur sem kveða m.a.á um að atvinnu- og ferðamálanefnd skuli fjalla um umsóknir og leita eftir þeim gögnum sem gæfu mynd að rekstrargrunni, viðskiptaáætlunum og fleirum þáttum í rekstrinum sem nauðsynlegt er að fá vitneskju um áður en ákvörðun er tekin.
Ljóst er að með þessari ákvörðun nýja meirhlutans sem hér er til afgreiðslu, um flutningsstyrk til Glerborgar ehf, er gengið á svig við vinnureglur um aðkomu bæjarins að atvinnumálum. Atvinnu- og ferðamálanefnd hefur ekki fjallað um þann samning sem liggur hér fyrir og er dagsettur 31. desember 2009. Í samningum er engin kvöð á því fyrirtæki sem á að styrkja um þessar tæpu 23 milljónir nema að litlu leyti. Í annari grein samningsins er loðið orðalag um að Glerborg leggi áherslu á að í fyrirtækinu vinni aðilar sem eiga lögheimili í Grindavík.
Það er algjört lykilatriði að fyrirtæki í Grindavík og fyrirtæki sem vilja koma til Grindavíkur sitji öll við sama borð varðandi aðkomu bæjaryfirvalda. Með þessari ákvörðun um 23 milljón króna fyrirgreiðslu telur undirrituð að það hljóti að vera sú fyrirgreiðsla sem hvert og eitt fyrirtæki getur óskað eftir að fari úr sjóði bæjarbúa til atvinnuþátttöku.
Bæjaryfirvöld skoðuðu nú rétt fyrir jólin að koma fyrirtækjum hér í Grindavík til aðstoðar með það fyrir augum að styrkja sjávarútveginn. Vilyrðin sem þau fyrirtæki fengu snerust ekki um eins háar fjárhæðir og nú ræðir og má því segja að hér sé um að ræða fyrirgreiðslupólítík gamla tímans.
Fulltrúi B-lista.
Bókun:
Hægt er að taka undir mörg atriði í bókun fulltrúa B-lista sem var formaður bæjarráðs í fyrri meirihluta. En fulltrúi B-lista gleymir því að í þrígang hafði hún reynt að keyra málið í gegn um bæjarráð, á fundum 1211, liður 10, 3. september 2009, fundi 1214 30. sept. 2009 og síðan samþykkti hún gjörningin á fundi 1215 liður 13, 7 okt. 2009. Undirskriftir og loforð sem fyrir liggja á bæjarskrifstofu frá forsvarsmönnum síðasta meirihluta, sanna að búið var að klára málið fyrir slit. Er ég því afar hissa á flestu því sem kemur fram í bókun fulltrúa B-lista.
Fulltrúi D-lista.
Bókun:
Fulltrúi B-lista hefur engu gleymt um feril þessa fyrirgreiðslumáls og stendur við allt sem kemur fram í fyrri bókun hennar. Fulltrúi B-lista vekur athygli á viðsnúningi fulltrúa D-lista í málinu eins og sjá má af fyrri bókunum hans á bæjarráðsfundum. Spurningin er hvort þetta séu kaupin að nýjum meirihluta?. Svari hver fyrir sig.
Fulltrúi B-lista.
Bókun:
Vil ítreka að fólk kynni sér fundargerð bæjarráðs nr. 1215, lið 13.
Fulltrúi D-lista.
23. 0811040 - Fundur í Fræðslu-og uppeldisnefnd 15. sept. 2008.
Fundagerðin lögð fram.
24. 0912041 - 605.fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 14.desember 2009.
Fundagerðin lögð fram.
25. 0912040 - 67. fundur þjónustuhóps aldraðra þann 9. desember 2009.
Fundagerðin lögð fram.
26. 0912067 - Fundur í undirbúningsnefnd um stofnun framhaldsskóla í Grindavík þann 21.12.09.
Fundagerðin lögð fram.
27. 0911086 - Tilboð í biðskýli við Reykjanesbraut.
Samþykkt að taka tilboði Vélsmiðju Grindavíkur í skýlið að fjárhæð kr. 638.000 án VSK.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
