10. fundur Ferða- og atvinnumálanefndar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 21. desember 2009 og hófst hann kl. 20:00
Fundinn sátu:
Ingimar Waldorff (IW), Heiðar Hrafn Eiríksson, Magnús Már Jakobsson (MMJ), Páll Valur Björnsson, Marta Sigurðardóttir (MS),
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, Upplýsinga- og þróunarfulltrúi.
Dagskrá:
1. 0911058 - Skilti o.fl. í samstarfi við Bláa lónið
Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með fundinn og jákvæð viðbrögð frá Bláa lóninu og felur upplýsinga- og þróunarfulltrúa að vinna áfram að aukinni samvinnu á öllum sviðum.
2. 0911057 - Kannanir um atvinnuuppbyggingu og Suðurstrandarveg
Viðbrögð hafa borist frá Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri við bréfi nefndarinnar um hvort nemendur hefðu áhuga á því að vinna lokaverkefni í sínu námi fyrir nefndina. Áfram verður unnið að því að kynna þetta við Bifröst og Háskóla Reykjavíkur. Vegna fyrirspurnar frá HÍ leggur nefndin til við bæjarráð að gera ráð fyrir greiðslu vegna vinnu við slíkt lokaverkefni við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010.
3. 0911055 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar
Nefndin bauð menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar í heimsókn til Grindavíkur til að ræða samvinnu á milli bæjarfélaganna í ferðamálum. Hafnfirðingar tóku vel í erindið. Stefnt er að því að bjóða Hafnfirðingum í heimsókn föstudaginn 29. janúar og er Heiðari falið að fylgja því eftir.
4. 0911059 - Leiðsögukerfi í iPhone
Nefndin boðar aðila sem hefur hannað leiðsögukerfi í iPhone á næsta fund nefndarinnar, þriðjudaginn 26. janúar.
5. 0912058 - Tjaldsvæðið og sjóarinn síkáti
Þar sem Grindavíkurbær er að endurskoða rekstur Saltfisksetursins leggur nefndin til að skoðað verði samstarf setursins og tjaldsvæðisins fyrir næsta sumar vegna hugsanlegra samlegðaráhrifa.
Nefndin leggur til að Sjóarinn síkáti verði með svipuðu sniði og í fyrra sem tókst vel. Jafnframt verði leitað til Grindavík-Experience um að koma að framkvæmd hátíðinnar til að efla hana enn frekar enda hafa aðilar sem standa að þeim samtökum mikilla hagsmuna að gæta að sem best takist til.
Nefndin samþykkir að gefa fundarlaun sín fyrir þennan fund til Grindavíkurkirkju sem sér um að koma peningunum í góðar hendur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:30.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






