Fyrirtćki vikunnar - Eldvarnir Grindavíkur
Fyrirtćki vikunnar - Eldvarnir Grindavíkur

Eldvarnir Grindavíkur ehf. er nýtt fyrirtæki í Grindavík. Það er stofnað af þeim Einari Sveini Jónssyni og Hirti Walterssyni og tilgangur þess er að annast slökkvitækjaþjónustu og sölu á eldvarnarbúnaði. Hingað til hafa eingöngu utanaðkomandi aðilar boðið upp á þessa þjónustu hér í bænum. Grindavíkurbær hefur þegar samið við Eldvarnir Grindavíkur um að annast slökkvitækaþjónustu fyrir sig. Eldvarnir Grindavíkur eru fyrirtæki vikunnar.

En hvers vegna að stofna þetta fyrirtæki?
,,Þar sem við erum báðir í Slökkviliði Grindavíkur og miklir áhugamenn um eldvarnir, fannst okkur tilvalið að koma þessari þjónustu og þekkingu í heimabyggð og geta boðið fyrirtækjum, bátum og heimilum upp á persónulega, vandaða og góða þjónustu," segir Einar Sveinn sem hefur orð fyrir þá félaga. 

- Hvaða menntun og reynslu hafið þið?
,,Við erum báðir í Slökkviliði Grindavíkur og erum full menntaðir hlutastarfandi slökkviliðsmenn og höfum hlotið löggildingu frá Brunamálastofnun. Eins höfum við sótt okkur þá aukamenntum sem Brunamálastofnun og Siglingamálastofnun fara fram á til að mega sinna þessari þjónustu."

- Hvers konar þjónustu bjóðið þið upp á?
,,Eldvarnir Grindavíkur þjónusta og hlaða allar tegundir af slökkvitækjum, eins höfum við til sölu allar helstu tegundir af eldvarnarbúnaði t.d. reykskynjara, þráðlausa samtengjanlega reykskynjara, eldvarnateppi, allar tegundir af slökkvitækjum, rafhlöður í reykskynjara o.fl."

- Hvað þarf að hafa í huga hvað varðar brunavarnir yfir hátíðarnar?
,,Nú gengur sá tími í hönd þegar notkun á kertaskreytingum og ljósaseríum er hvað mest á heimilum landsmanna og samfara því eykst hættan á eldsvoðum og alvarlegum slysum ef ekki er rétt með farið. 
Eldvarnirnar miða fyrst og fremst að því að tryggja líf þitt og heilsu. Í öðru lagi geta eldvarnir dregið verulega úr tjóni á eignum þínum. Þú þarft fyrst og fremst að hafa eftirfarandi til staðar og í lagi:
• Reykskynjara. Nægjanlega marga og rétt staðsetta. Þekkingu á fyrstu viðbrögðum.
• Flóttaleiðir, nægilega margar og greiðfærar.
• Slökkvibúnað af réttri gerð og rétt staðsettan. Slökkvitæki á heimilum þarf að yfirfara á 3 ára fresti
Ráðlagt er að skipta um batterí í reykskynjurum einu sinni á ári."
 

Einar Sveinn vildi að lokum þakka fyrir þær góðu móttökur sem þeir hafa fengið hjá þeim fyrirtækjum og heimilum sem þeir hafa verið að þjónusta og vona að fleiri fyrirtæki og heimili eigi eftir að koma í þjónustu til sín.

,,Enda eru topp menn hér á ferð sem skila af sér vandaðari vinnu. Endilega hafið samband við okkur í síma 664 9112 ef ykkur vantar þjónustu eða bara ráðleggingar í sambandi við eldvarnir og búnað. Eins sækjum við slökkvitæki og skilum að lokinni yfirferð," sagði Einar Sveinn að lokum.

Á efri myndinni er Einar Sveinn en á myndinni til hægri er Hjörtur.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut