Grindvíkingur vikunnar - Guđfinna Bogadóttir
Grindvíkingur vikunnar - Guđfinna Bogadóttir

Mikið er um að vera við undirbúning jólahátíðarinnar ekki síst hjá þeim sem reka verslanir og ýmsa þjónustu. Blómakot var opnað fyrir rúmu ári síðan við Mánagötu en Guðfinna Bogadóttir lét þá gamlan draum rætast að opna blómabúð. Guðfinna svarar hér nokkrum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar en þess má geta að hún er einnig í kirkjukór Grindavíkur sem heldur sína árlegu jólatónleika í kvöld í Grindavíkurkirkju.

Nafn? Guðfinna Bogadóttir.
Fjölskylduhagir? Á fjögur börn á aldrinum 17 til 28 ára og 3 barnabörn.
Starf? Vinn í mötuneyti Grunnskólans fyrri hluta dags og svo tekur Blómakot við fram á kvöld.
Uppáhalds-
...maturinn?
Humar, sama hvernig hann er matreiddur en hákarlinn klikkar aldrei.
...drykkurinn? Sítrónu kristall en á þessum tíma er malt og appelsín í miklu uppáhaldi hjá mér.
...staðurinn? Stífla Fljótum í Skagafirði í blanka logni og fjöllin speglast í vatninu.
...leikarinn? Ingvar Sigurðsson klikkar sjaldan.
...blómið? Hádegisblóm en afskorið er það fresia.
...liturinn? Ég er nú svolítið græn eða rauð en svart er aldrei langt undan.
...bókin? Nú er það bara söngbókin með jólaprógramminu.
...bíómyndin? Ég get alltaf hlegið jafn mikið af Nothing Hill.
...íþróttamaðurinn? Ólafur Stefánsson.
...liðið? Grindavík, fyrirgefðu Eyþór Atli.
Hvert er þitt lífs mottó? Reyna að njóta lífsins með bros á vör því ekkert er sjálfsagt í lífinu.
Hvað er best við Grindavík? Gott fólk, margt sem maður hefur umgengist alla ævi.
Hvað er vinsælast í Blómakoti fyrir þessi jólin? Kerti, servettur og tilbúnar jólaskreytingar.
Hvað er skemmtilegast við starfið? Fjölbreytt og ég hitti mikið af fólki með ólíkar skoðanir á lífinu og tilverunni.
Hver eru þín helstu áhugamál? Mínar bestu stundir eru þegar ég get sest niður heima, hef tekið þokkalega til og get verið að vinna að einhverjum hannyrðum.
Eitthvað að lokum? Ég er algjört jólabarn og elska allt umstang fyrir jólin, því segi ég GLEÐILEG JÓL til ykkar allra.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut