391. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 9. desember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Garðar Páll Vignisson, Petrína Baldursdóttir, Guðmundur L. Pálsson, Björn Haraldsson, Hörður Guðbrandsson og Gunnar Már Gunnarsson
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Dagskrá:
1. 0912016 - Ráðningarsamningur bæjarstjóra
Til máls tóku: Guðmundur, Petrína, Gunnar Már, Garðar og Hörður
Bókun
Bæjarfulltrúar B-lista lýsa yfir undrun sinni á því hvernig bæjarstjóramál eru afgreidd af fyrrum samstarfsflokkum okkar S lista og V-lista.
Í júní 2008 þegar Samfylking boðaði B-lista til fundar við sig og viðraði hugmyndir um meirihlutaviðræður og samstarf var útgangspunkturinn að þáverandi oddviti samfylkingar yrði nýr bæjarstjóri Grindavíkur.
Allir vita svo eftirleikinn af því; nýr bæjarstjóri samfylkingar og samningur við Ólaf Örn Ólafsson upp á tugi milljóna fyrir bæjarsjóð var í uppnámi. Oddviti D-lista hefur margað ítrekað með bókunum að sá kostnaður væri upp á hátt í 100 miljónir króna fyrir Grindvíkinga.
Nú geta Samfylkingin og fulltrúar vinstri grænna spólað sig svo tilbaka varðandi bæjarstjóramálin að nú skal ljúka því sem fulltrúar D og S lista hófu í byrjun kjörtímabils með umdeildum samningi við bæjarstjórann, Ólaf Örn Ólafsson, að síðustu 6 mánuði skal hann, vegna umpólunaráráttu S-lista, klára samninginn sem hefur kostað bæjarbúa tugi milljóna króna.
Er þetta ekki leikhús fáranleikans?
Fulltrúar B-lista
Bókun
Vegna bókunar framsóknarmanna vil ég að eftirfarandi komi fram; að það hafi legið ljóst fyrir að framsóknarmenn hafi ekki viljað Ólaf Örn sem bæjarstjóra áður en stungið hafi verið upp á þáverandi oddvita samfylkingar í bæjarstjórastólinn.
Hörður Guðbrandsson, fulltrúi S-lista
Bókun
Fulltrúi S-lista notar orðalagið "legið ljóst fyrir" í sinni bókun eins og hann hafi þá gert ráð fyrir að hlutirnir væru eins og hann héldi að þeir væru.
Líkist það einmitt bæjarstjóraágreining þeim sem var nýverið en þá hafði fulltrúi B-lista gert honum það ljóst að ekki væri ætlunin að þiggja aukasporslur fyrir sitt hlutverk fram að næstu kosningum í samvinnu við hann og fjármálastjóra sem hefði tekið að sér starf bæjarstjóra sem staðgengill hans. Það skilaði sér greinilega ekki til réttra aðila.
Fulltrúar B-lista
Bókun
Á báðum þessum málum hef ég skilið hlutina algjörlega á annan veg.
Hörður Guðbrandsson, fulltrúi S-lista
Samþykkt með 5 atkvæðum, að ráða Ólaf Örn Ólafsson sem bæjarstjóra samkvæmt framlögðum ráðningarsamningi, forseta bæjarstjórnar er falið að undirrita samninginn. Petrína og Gunnar Már á móti.
2. 0912015 - Kosning í nefndir og ráð
Til máls tók: Hörður
Tillögur að nefndarskipan
Bæjarráð ( 3 )
Aðalmenn
Guðmundur Pálsson D
Björn Haraldsson V
Petrína Baldursdóttir B
Hörður Guðbrandsson S, áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurrétt og hann fær greitt fyrir sem almennur bæjarráðsmaður
Kjörstjórn ( 3 )
Aðalmenn
Kjartan Adólfsson D
Bjarnfríður Jónsdóttir, formaður S
Helgi Bogason B
Varamenn
Kristín Guðmundsdóttir D
Sigurður Enoksson S
Sesselja Hafberg B
Almannavarnanefnd ( 2 )
Aðalmenn
Ólafur Þór Þorgeirsson
Guðfinna Bogadóttir
Varamenn
Bogi Adólfsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Búfjáreftirlitsmaður ( 1 )
Aðalmaður
Hörður Guðbrandsson
Skipulags- og bygginganefnd ( 5 )
Aðalmenn
Gísli Sigurðsson D
Svanþór Eyþórsson D
Sigurður Kristmundsson, formaður S
Einar Jón Ólafsson V
Unnar Magnússon B
Varamenn
Pétur Bragason D
Ólafur Guðbjartsson D
Harpa Guðmundsdóttir S
Guðmundur Finnsson V
Björgvin Björgvinsson B
Félagsmálaráð ( 5 )
Aðalmenn
Guðbjörg Eyjólfsdóttir D
Albína Unndórsdóttir, varaformaður S
Halla Eyberg Þorgeirsdóttir V
Hulda Jóhannsdóttir, formaður S
Sigríður Þ. Þórðardóttir B
Varamenn
Ólöf Bolladóttir D
Sigurður Jónsson S
Teresa Björnsdóttir V
Dórothea Jónsdóttir S
Gunnar Már Gunnarsson B
Fulltrúaráð Eignarhaldsf. Brunabótarfél Íslands ( 1 )
Aðalmaður
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri
Varamaður
Jón Þórisson, fjármálastjóri
Fjallskilanefnd ( 3 )
Aðalmenn
Hermann Ólafsson
Hörður Sigurðsson
Ásta Jóhannesdóttir
Varamenn
Guðjón Þorláksson
Þórir Kristinsson
Halldór Þorláksson
Hafnarstjórn ( 5 )
Aðalmenn
Guðmundur S. Ólafsson, formaður D
Jón Emil Halldórsson D
Ólafur Sigurpálsson S
Steinþór Helgason V
Páll Gíslason B
Varamenn
Sigmar Eðvarðsson D
Guðbjörg Eyjólfsdóttir D
Sigurður Kristmundsson S
Hinrik Bergsson V
Hilmar Helgason B
Húsnæðisnefnd ( 3 )
Aðalmenn
Jóna Rut Jónsdóttir D
Hulda Jóhannsdóttir, formaður S
Sigríður Þórðardóttir B
Varamenn
Guðrún Dröfn Birgisdóttir D
Sigurður Jónsson S
Hallgrímur Bogason B
Íþrótta- og æskulýðsnefnd ( 5 )
Aðalmenn
Jóna Rut Jónsdóttir D
Sigurður Enoksson, formaður S
Pálmar Guðmundsson S
Þórunn Erlingsdóttir V
Sigríður Guðmundsdóttir Hammer B
Varamenn
Ægir Viktorsson D
Jovana Lilja Stefánsdóttir S
Marta Sigurðardóttir S
Teresa Björnsdóttir V
Vilhjálmur Lárusson B
Menningarnefnd ( 3 )
Aðalmenn
Kristín Gísladóttir, formaður D
Harpa Guðmundsdóttir S
Kristín Þorsteinsdóttir B
Varamenn
Karen Matthíasdóttir D
Benóný Harðarson S
Vigdís Helgadóttir B
Skoðunarmenn ( 2 )
Aðalmenn
Andrés Óskarsson
Dórothea Jónsdóttir
Fræðslu- og uppeldisnefnd ( 5 )
Aðalmenn
Klara Halldórsdóttir, formaður D
Svanþór Eyþórsson D
Valgerður Áslaug Kjartansdóttir S
Hjördís Guðmundsdóttir V
Jón Fannar Guðmundsson B
Varamenn
Vilhjálmur Árnason D
Ásdís Ester Kristinsdóttir D
Dórothea Jónsdóttir S
Sigrún Stefánsdóttir V
Eva Sigurðardóttir B
Stjórn SSS ( 1 )
Aðalmaður
Sigmar Eðvarðsson D
Varamaður
Guðmundur Pálsson D
Stjórn Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja ( 1 )
Aðalmaður
Hörður Guðbrandsson S
Varamaður
Garðar Páll Vignisson V
Stjórn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja ( 1 )
Aðalmaður
Björn Haraldsson V
Varamaður
Garðar Páll Vignisson V
Umhverfisnefnd ( 3 )
Aðalmenn
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður D
Dórothea Jónsdóttir S
Bryndís Gunnlaugsdóttir B
Varamenn
Svava Jónsdóttir D
Benóný Harðarson S
Friðrik Björnsson B
Ferða- og atvinnumálanefnd ( 5 )
Aðalmenn
Magnús Már Jakobsson, formaður D
Heiðar Hrafn Eiríksson D
Jovana Lilja Stefánsdóttir S
Sigurður A. Kristmundsson S
Ingimar Waldorff B
Varamenn
Birgir R. Reynisson D
Páll Erlingsson D
Páll Valur Björnsson S
Marta Sigurðardóttir S
Jakob Sigurðsson B
Nefnd um Menntaskóla Grindavíkur
Aðalmenn
Guðmundur Pálsson D
Garðar Páll Vignisson V
Petrína Baldursdóttir B
Samþykkt samhljóða
3. 0912008 - Álagningarhlutfall útsvars árið 2010
Til máls tók: Hörður
Tillaga
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2010 verði 13,28%
Samþykkt samhljóða
4. 0910012 - Fjárhagsáætlun 2010
Til máls tóku: Hörður, Petrína, Guðmundur, Gunnar Már og Sigmar
Tillaga
Lagt er til að fresta síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2010 til janúarfundar bæjarstjórnar og fjármálastjóra er falið að sækja um mánaðarfrest á skilum fjárhagsáæltunar 2010 til ráðuneytis.
Tillagan er samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már situr hjá.
5. 0909001 - Glerborg, aðkoma Grindavíkurbæjar v/flutnings
Til máls tók: Hörður
Tillaga
Lagt er til að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla málsins.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
6. 0911027 - Tryggingar Grindavíkurbæjar - útboð
Fjármálastjóri kynnti niðurstöður útboðsins.
Tillaga
Lagt er til að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Sjóvá, á grunni tilboðsins.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Gunnar Már vék af fundi undir liðnum.
7. 0911009F - Skipulags- og byggingarnefnd Grindavíkur - 508
Til máls tók: Garðar
Fundargerð 508. fundar skipulags- og bygginganefndar lögð fram til afgreiðslu á 391. fundi bæjarstjórnar og er afgreiðsla hennar eins og einstök erindi bera með sér.
7.1. 0911097 - Umsókn um byggingarleyfi Heiðarhraun 8
Samþykkt samhljóða
7.2. 0911093 - Umsókn um byggingarleyfi Staðarsund 5
Samþykkt samhljóða
7.3. 0909017 - Grenndarkynning vegna fjarskiptastaurs á lóð Víkurbraut 25
Tillaga
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu þessa liðar.
Samþykkt samhljóða
7.4. 0806035 - Vatnsskarðsnáma-breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar
Samþykkt samhljóða
7.5. 0812033 - Deiliskipulag vegna Vatnskarðsnámur
Samþykkt samhljóða
7.6. 0911104 - Umsókn um byggingarleyfi Túngata 21
Samþykkt samhljóða með sama fyrirvara og hjá skipulags- og bygginganefnd
7.7. 0911105 - Ósk um umsögn vegna breytinga á Hafnargötu 16
Afgreiðsla á fundi 508. skipulags- og bygginganefndar er staðfest samhljóða á fundi bæjarstjórnar nr. 391.
8. 0911007F - Bæjarráð Grindavíkur - 1219
Enginn tók til máls
Fundargerð 1219. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar á 291. fundi bæjarstjórnar og er afgreiðsla hennar eins og einstök erindi bera með sér.
9. 0911008F - Bæjarráð Grindavíkur - 1220
Enginn tók til máls
Fundargerð 1220. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar á 291. fundi bæjarstjórnar og er afgreiðsla hennar eins og einstök erindi bera með sér.
10. 0912002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1221
Enginn tók til máls
Fundargerð 1221. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar á 291. fundi bæjarstjórnar og er afgreiðsla hennar eins og einstök erindi bera með sér.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:12
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






