Ár 2009, mánudaginn 7. desember var haldinn 62. fundur í menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst kl. 15:00
Mætt: Rósa Baldursdóttir, Harpa Guðmundsdóttir og Kristín Gísladóttir. Einnig sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. 0911039 - Menningarverðlaun. Bæjarráð Grindvíkur hefur óskað eftir frekari útfærslu á hugmyndum nefndarinnar á veitingu þessara verðlauna. Lögð fram drög að reglugerð um Menningarverðlaun Grindavíkur. Samþykkt að vísa þeim til samþykktar í bæjarráði.
2. 0911040 - Bæjarlistamaður Grindavíkur. Bæjarráð Grindvíkur hefur óskað eftir frekari útfærslu á hugmyndum nefndarinnar á tilnefningu bæjarlistamanns. Lögð fram drög að reglugerð um tilnefningu á bæjarlistamanni Grindavíkur. Samþykkt að vísa þeim til samþykktar í bæjarráði.
3. 0911041 - Þrettándagleði 2010. Rætt um fyrirkomulag á búningakeppni og öðrum framkvæmdaliðum hátíðarinnar.
4. 0811030 - Menningarvika í Grindavík. Samþykkt að menningarvika Grindvíkinga 2010 verði haldin 13. - 20. mars.
5. 0912017 - Bréf knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildar UMFG. Borist hefur bréf frá knattspyrnu- og körfuknattleiksdeild UMFG þar sem vakin er athygli á því að nokkuð hafi borið á því að menningar- og íþróttaviðburðir hafi verið að rekast á og fólk hafi því þurft að velja á milli. Vilja bréfritarar kanna hvort ekki sé hægt að finna góða lausn á þessu vandamáli til að forða því að svona árekstar verði, öllum til hagsbóta. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið bréfritara og beinir þeim tilmælum til þeirra aðila sem eru að standa fyrir viðburðum í bæjarfélaginu að taka tillit til hvors annars. Leggur nefndin til að viðburðadagatal á heimsíðu bæjarins verði virkjað betur í þessum tilgangi til að koma á framfæri viðburðum í bæjarfélaginu.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 15:40.
Rósa Signý Baldursdóttir
Harpa Guðmundsdóttir
Kristín Gísladóttir
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
