Til að svara að einhverju leyti grein oddvita framsóknarmanna vil ég hverfa aftur til þess dags er ég hitti bæjarfulltrúa framsóknarmanna fyrst í þá nýjum meirihluta B - og S - lista. Jóna Kristín þá nýbyrjuð sem bæjarstjóri og ég hóf samtalið með þeim orðum að ég treysti þeim ekki en væri tilbúinn að gefa þeim tækifæri til þess að ávinna traust. Okkar hlutverk væri að byggja upp traust.
Þá finnst mér ekki við hæfi að vera að skrifa á þessu svæði greinar eins og grein oddvitans og í raun svar mitt. Hér ætti miklu fremur að skrifa um framtíðarsýn og hvað fólk vill gera fyrir bæjarfélagið.
Ég er tilbúinn að treysta fólki og vinna með því af heilindum, því sem ég lofa stend ég við. Ég er ekki að vinna í bæjarmálunum fyrir mig sjálfan en vil gjarnan hafa áhrif á það hvernig samfélagi ég bý í.
Oddviti B- lista gerir það að tilgátu að ég sé að hefna mín vegna þess að ég fékk ekki skólastjórastöðu. Það er alrangt, hér eru bara hagsmunir bæjarbúa hafðir að leiðarljósi, því lofa ég, enda fyrir löngu búinn að sætta mig við þá staðreynd að fá ekki starfið. Þó situr sú meðferð sem ég fékk í fjölmiðlum og víðar í mér og ekki síður í minni fjölskyldu. Það var ekki gott andrúmsloftið á Íslandi og alls ekki hliðhollt stjórnmálamönnum þarna í apríl. Oddviti framsóknarmanna lét þá ýmislegt í ljósi við fjölmiðla sem túlkað var af hálfu þeirra sem lásu og heyrðu á mjög neikvæðan hátt. Fjölskylda mín var dregin þannig inn í þetta og það eina sem ég var sekur um var að sækja um starf hjá Grindavíkurbæ og vera talinn hæfur ásamt þremur öðrum. Þetta er ástæðan fyrir því að ég forðast að eiga samskipti við oddvita Framsóknar og hélt mig til hlés í þeim meirihluta þannig að vinnufriður væri.
Mér þykir miður að bjóða bæjarbúum upp á eina uppákomu til viðbótar á þessu kjörtímabili. Mér var þó ekki stætt á öðru enda hugmyndin að dreifa starfinu á þrjá einstaklinga sem eru í fullri vinnu alveg galin. Bæjarfulltrúar VG vildu fá Hörð Guðbrandsson sem bæjarstjóra enda okkar skoðun að Samfylkingin ætti stólinn út kjörtímabilið. Það hlýtur að vera betra að hafa einn ábyrgan aðila við stjórn enda um stórfyrirtæki að ræða. Þegar ég ræddi við núverandi oddvita Samfylkingar um hvort framsóknarmenn ætluðu ekki að gefa eftir sagði hann svo ekki vera. Ég spurði þá hvort það væri virkilega hugmyndin að þrískipta starfinu. Hann sagði svo vera. Án kaups spurði ég. Nei, það greiðist fyrir störfin, sagði hann. Þá á ég engra kosta völ þetta gengur ekki sagði ég.
Þannig er nú sannleikurinn um kaupið og slitin á samstarfinu, en sjálfsagt horfir hver með sínum gleraugum á málið. Framundan eru erfiðir tímar í íslensku samfélagi og miklu máli skiptir að huga að náunganum.
Þá styttist til jóla og því mikilvægt að snúa sér að því að huga að fjölskyldunni. Ég kýs því að tjá mig ekki meira um þetta. Um leið og ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári vil ég bjóða Ólaf Örn Ólafsson velkominn aftur til starfa sem bæjarstjóra.
Garðar Páll Vignisson.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
