Að sigra heiminn?

Hún er skrítin þessi pólitík í Grindavík verð ég að segja.
Á aðventu jóla er bæjarbúum boðið upp á enn eina uppstokkunina á bæjarstjórn og nokkrir dagar eru til jóla. Ég get fullvissað ykkur kæru bæjarbúar að ákvörðun um þetta sjónarspil var ekki að gerast í gærdag með yfirlýsingu VG í Grindavík. Það er nokkrar vikur síðan þessi ákvörðun var tekinn.

Ákvörðunin snýst ekki um eins og segir í mjög svo smekklegri yfirlýsingu VG í gær að fulltrúar Framsóknar hafi ekki viljað leysa bæjarstjóramál Grindavíkur og ætlað að bjóða hér upp á þrjá bæjarstjóra (eins og segir í tilkynningunni). Síðan fylgir umræða um að hér hafi menn ætlað að hafa þrjá aðila á launum.
Nei, þetta snýst fyrst og fremst um stund hefndarinar. Þetta byrjaði um páskanna með því að tiltekin bæjarfulltrúi var ekki gerður að skólastjóra yfir nýjum skóla.

Hvernig vildi Framsókn leysa bæjarstjóramálið !
Þegar ljóst var í september s.l að brotthvarf Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur úr pólitík í Grindavík yrði 1.desember var það strax rætt á meðal okkar bæjarfulltrúa sem skipuðum meirihluta að leysa málið með sem minnstum tilkostnaði og einnig að miðað við umrótið í pólitíkinni í bænum á kjörtímabilinu væri það sennilega besta lausnin að finna flöt á samvinnu okkar. Einnig töldum við að svo stuttur tími væri ósanngjarn fyrir aðila sem ekki þekkir til stjórnsýslunar að komast inn í öll mál.

Niðurstaðan leiddi síðan til þess að upp koma hugmynd hjá okkur að biðja fjármálastjóra Grindavíkurbæjar að leysa málið í þessa 6 mánuði fram að sveitarstjórnarkosningum.

Hann er mjög hæfur embættismaður og var tilbúinn að leysa málin á þeim nótum með okkur. Hann gerði okkur strax grein fyrir því að hann óskaði ekki aftir að verða pólitíksur talsmaður meirihluta. Þetta töldum við Framsókn að vel væri hægt að leysa þannig að forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs gætu leyst það og samrýmist það hlutverkum þessarra embætta. Aldrei koma fram að við ætluðum okkar það að þessir tveir pólitíkusar fengju greitt sérstaklega fyrir það. Enda enginn vissa um að þetta yrði meiriháttar viðbót við erilsamt hlutverk til að mynda formanns bæjarráðs. Töldum við að hægt væri fyrir þessa þrjá aðila að leysa málin í þriggja manna teymi með baklandi meirihlutans í svo stuttan tíma.

Hefði það ekki verið skemmtileg tilbreyting fyrir bæjarbúa í Grindavík að menn gætu leyst málin á þann hátt að engir persónulegir hagsmunir eða skítkast væri aðalatriðið í þessari blessaðri pólitík? Er það ekki það sem Íslendingar hafa verið að biðja um að pólitíkin hætti að snúast um persónulega hagsmuni manna og menn einbeittu sér að málefnum fólksins.

Það teljum við bæjarfulltrúar Framsóknarfélags Grindavíkur.

Meirhluti B og S lista hefur á þeim 17 mánuðum sem hann var við völd komið mörgum góðum málum áleiðis og til framkvæmda. Undirrituð telur að enginn geti fullyrt annað.

Við Framsóknarmenn munum ekki fara út í persónulegt skítkast við aðra bæjarfulltrúa það sem eftirlifir kjörtímabils heldur sýna málefnalega afstöðu til mála eins og við ávallt höfum gert.

Að lokum þetta.

Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
Með spekingslegum svip og taka í nefið
Þótt þú tapir það gerir ekkert til
Það er nefnilega vitlaust gefið.
                (Steinn Steinarr)

Undirrituð óskar Grindvíkingum gleðilegra jóla og vonar að bæjarbúar geti unað glaðir við sitt meðal fjölskyldna sinna.


Petrína Baldursdóttir bæjarfulltrúi B-lista.