1221. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 2. desember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Petrína Baldursdóttir, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Björn Haraldsson, Hörður Guðbrandsson (HG),
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, fjármálastjóri
Dagskrá:
1. 0911062 - Endurbygging sela.
Gísli G. Sigurðsson fór yfir hugmyndir sínar varðandi endurbyggingu landbúnaðar- og sjárvarútvegssela.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir Gísla og felur forstöðumanni tæknisviðs að móta hugmyndir um málið í samráði við Gísla og leggja fyrir bæjarráð.
2. 0910065 - Gæsla vegna íþróttakennslu í grunnskólanum
Forstöðumaður íþróttamannvirkja mætti til fundar og fór yfir gæslu í búningsklefum á skólatíma. Forstöðumanni falið að koma með tillögur um úrbætur í samræmi við umræður á fundinum.
3. 0911036 - Reglur um útleigu á íþróttahúsi fyrir skemmtanahald
Bæjarráð vísar reglunum til forstöðumanns íþróttamannvirkja til umsagnar.
4. 0911034 - Verðskrá fyrir íþróttamannvirki
Bæjarráð vísar reglunum til forstöðumanns íþróttamannvirkja til umsagnar.
Bæjarráð telur eðlilegt að leigutekjur af húsnæði í eigu Grindavíkurbæjar renni í bæjarsjóð. Forstöðmanni íþróttamannvirkja er falið að sjá um innheimtu leigutekna af íþróttamannvirkjum.
5. 0912002 - Ræsting í Hópsskóla.
Bæjarráð samþykkir ráðningu í 1,5 stöðugildi vegna ræstinga út þetta skólaár.
6. 0912001 - Ósk um styrk
Bæjarráð hafnar erindinu.
7. 0911103 - Styrkjum staðarandann.
Bæjarráð hafnar erindinu.
8. 0911102 - Beiðni um umsögn um tillögu til þingsályktunar um afturköllun á ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínu, 11. mál.
Lagt fram.
9. 0911100 - Ósk um fund vegna losunar á úrgangssalti.
Bæjarráð vísar erindinu til nefndar um aðalskipulag. Jafnframt óskar bæjarráð eftir því að nefndin hafi samráð við hagsmunaaðila vegna málsins.
10. 0911099 - Meðferð rekstrarleigusamninga í reikningsskilum sveitarfélaga
Erindið lagt fram.
11. 0911089 - Verk- og arkitektaþjónusta vegna skjala- og teikningaumsýslu f. Grindavíkurbæ
Erindinu er vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir 2010.
12. 0910075 - Samfélagsþjónusta vegna atvinnuleysis.
Bæjarráð mælir með því að viðvera í Kvennó verði aukin í samræmi við tillögur félagsmálastjóra um 1 dag til viðbótar við fasta opnunartíma tvisvar í viku og atvinnulausum einstaklingum verði velkomið að nýta sér þetta úrræði. Félagsmálastjóra er falið að vinna að þessu í samstarfi við frístunda- og menningarfulltrúa og taka saman upplýsingar um nýtingu og fjölda gesta.
13. 0906009 - Norðanmenn óska eftir styrk.
Erindið lagt fram. Bæjarráð boðar forsvarsmenn Norðanmanna á næsta fund bæjarráðs til að fara yfir málið.
14. 0911015 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar Aðal ehf, kt. 561009-1470, Höskuldarvellir 1, um leyfi skv. lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististað og skemmtanahald til að reka veitingastað í flokki II að Hafnargötu 7a Grindavík, (mamma mia)
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfisins. Hörður vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:42
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
