Í kvöld er prjónakaffi í Flagghúsinu en það er ávallt fyrsta miðvikudagskvöld í hverjum mánuði. Prjónakvöldin hafa vakið verðskuldaða athygli. Guðbjörg Ásgeirsdóttir í Flagghúsinu heldur utan um þau og í kvöld er jólastemmning, óáfengt jólaglögg og kanilterta verður á boðstólum og lesinn verður húslestur að fornum sið. Þá verður kynnt verkefni sem nefnist húfuverkefni Kvenfélagasambands Íslands. Guðbjörg svaraði nokkrum laufléttum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.
Nafn? Guðbjörg Ásgeirsdóttir.
Fjölskylduhagir? Gift Erling Einarssyni og eigum við 3 uppkomna syni og 5 barnabörn.
Starf? Skrifstofumaður.
Uppáhalds-
...maturinn? Fiskibollur heimagerðar.
...drykkurinn? Kaffi.
...staðurinn? Katlahraunið.
...leikarinn? Fannst Gísli Halldórs alltaf góður.
...bókin? Bókaþjófurinn eftir Markus Zusak og einnig þríleikurinn hans Stieg Larsson.
...bíómyndin? Sound of music, hef séð hana yfir 20 sinnum.
...íþróttamaðurinn? Enginn sérstakur.
...liðið? Fylgist alltaf með Grindavík.
Hvert er þitt lífs mottó? Lifa lífinu lifandi og halda tengsl við stórfjölskylduna.
Hvað er best við Grindavík? Allir þekkja alla sem er gott fyrir sálina svo er Borgin í hæfilegri fjarlægð.
Hvernig datt þér í hug að bjóða upp á prjónakaffi? Mikill áhugi á prjónaskap hjá konum og Flagghúsið hentar vel.
Einn karl hefur mætt með prjónana, áttu von á fleiri? Aldrei að vita, þeir geta þetta eins og við stelpurnar.
Hvað er í tísku í dag í prjónaskap? Lopi, lopi, lopi.
Hver eru þín helstu áhugamál? Hvar á að byrja? Útivist, spil, lestur og öll handavinna.
Eitthvað að lokum? Gleðileg jól.

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
