Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur var
haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa,
mánudaginn 30. nóvember 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Svanþór Eyþórsson, Unnar Á Magnússon, Sigurður A Kristmundsson (SAK), Einar Jón Ólafsson, Björgvin Björgvinsson,
Fundargerð ritaði: Ingvar Þ. Gunnlaugsson , Forstöðumaður Tæknideildar
Dagskrá:
1. 0911097 - Umsókn um byggingarleyfi Heiðarhraun 8
Sigurður M. Ágústsson, sækir um byggingarleyfi vegna breytinga utanhúss. Óskað er eftir leyfi til að einangra og klæða Heiðarhraun 8 með álundirstöðum og 30x60cm flísum að utan.
Nefndin samþykkir erindið
2. 0911093 - Umsókn um byggingarleyfi Staðarsund 5
Halldór Þorláksson kt.140547-4099, Ásabraut 12 og Guðjón Þorláksson kt.120745-3369, Vík. Sækja um byggingarleyfi fyrir Geymsluhúsnæði með verkstæðisaðstöðu á lóðina Staðarsund 5, einnig er óskað eftir að byggingarreitur verði stækkaður um 3 metra í suður. Samkv. teikningum frá Verkfræðistofunni Möndull.
Nefndin samþykkir erindið
3. 0909017 - Grenndarkynning vegna fjarskiptastaurs á lóð Víkurbraut 25
Grenndarkynning vegna fjarskiptastaurs á lóð Víkurbraut 25 í Grindavík
Þar sem að staðsetning fjarskiptastaurs og stærð byggingar við Víkurbraut 25 samræmist ekki teikningum Úti og Inni arkitektar dags. 16.09.2008 óskar nefndin eftir að grenndarkynna að nýju. Nefndin felur Forstöðumanni tæknisviðs og formanni skipulagsnefndar að svara athugasemdum íbúa vegna grenndarkynningar dags. 3. september 2009. Það er tillaga nefndarinnar að grunninum verði lokað og gengið frá lóðinni sem næst upprunalegu ásigkomulagi.
Fulltrúi Vinstri Grænna lét bóka eftirfarandi.
Ljóst er að sveitarstjórnin hefur aldrei staðfest samþykkt byggingarnefndar. Byggingin er í ósamræmi við hönnunargögn. Krefst ég þess að framkvæmdin verði fjarlægð, jarðrask afmáð og starfseminni hætt samkvæmt 2.mgr. 56. gr. um þvingunarúrræði og viðurlög.
4. 0806035 - Vatnsskarðsnáma-breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar
Gerð er breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2000-2020, dreifbýlisuppdrætti. Samkvæmt staðfestu aðalskipulagi er efnistaka á hluta svæðisins. Sú breyting er gerð á aðalskipulaginu að efnistökusvæði er stækkað. Svæðið sem fer undir stækkun efnistöku er óbyggt svæði. Efnistökusvæði nú: efnistökusvæði skv. aðalskipulagi staðfestu 2002: 21,4 ha efnistaka: 800.000 m3 á ári. Efnistökusvæði eftir stækkun: 81.2 ha, efnisþörf næstu 25 árin: 25.000.000 m3. Efnistökusvæðið er stækkað til austur og suðurs og mun ná yfir Háuhnjúka. Norðurmörk svæðisins færast til suðurs frá gildandi aðalskipulagi þar sem mörk Vatnsskarðsnámu reyndust liggja sunnar en talið var við staðfestingu aðalskipulags árið 2002. Reykjavegur er stikuð gönguleið um Reykjanesið. Reykjavegur liggur yfir fyrirhugað stækkunarsvæði Vatnsskarðsnámu,og er gönguleiðin því færð norður fyrir svæðið. Á grundvelli matslýsingar fyrir umhverfismat breytingarinnar var haft samráð við Skipulagsstofnun um umhverfisskýrslu. Ástæða og rökstuðningur fyrir stækkun efnistökusvæðisins, svo og mat á umhverfisáhrifum og vægi áhrifa kemur fram í meðfylgjandi umhverfisskýrslu.
Nefndin samþykkir breytinguna og jafnframt að auglýsa hana samkv. 1. mgr. 21. mgr. skipulags- og byggingalaga.
5. 0812033 - Deiliskipulag vegna Vatnskarðsnáma
Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2000-2020. Breytingartillagan felur í sér stækkun efnistökusvæðis Vatnskarðsnámu til austurs og suðurs. Norðurmörkin voru færð sunnar og eru því núna innan marka Grindavíkurbæjar en voru áður innan þess svæðis sem óvissa er um hvort tilheyri Grindavíkurbæ eða Hafnarfjarðarbæ. Deiliskipulagið er í samræmi við breytingartillöguna. Stækkun Vatnskarðsnámu er í samræmi við þá stefnu í aðalskipulagi Grindavíkur að hafa námur í landi bæjarfélagsins færri og þá stærri. Einnig segir í aðalskipulaginu að vanda beri frágang á námum eftir að nýtingu þeirra lýkur.
Nefndin samþykkir breytinguna og jafnframt að auglýsa hana samkv. 1. mgr. 25. grein skipulags- og byggingarlaga.
6. 0911104 - Umsókn um byggingarleyfi Túngata 21
Í upphafi óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði á dagskrá.
Samþykkt samhljóða
Sótt er um byggingarleyfi fyrir sólstofu yfir núverandi svalir skv. meðfylgjandi teikningum frá verkfræðistofunni Verkmáttur dags. 16.10.09
Nefndin samþykkir erindið með þeim fyrirvara að húsbyggjandi leiti samþykkis Víkurbrautar 50 og 52
7. 0911105 - Ósk um umsögn vegna breytinga á Hafnargötu 16
Í upphafi óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði á dagskrá.
Samþykkt samhljóða
Vísir óskar eftir umsögn vegna breytinga á húsnæði við Hafnargötu 16 úr geymslum í skrifstofur, ásamt breytingum utanhúss. Samkv, teikningum frá PK-Arkitektum dags. 09.09.09.
Nefndin tekur jákvætt í erindið
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________