Bćjarráđ nr. 1220

1220. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 25. nóvember 2009 og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Petrína Baldursdóttir, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Björn Haraldsson, Hörður Guðbrandsson.

Fundargerð ritaði: Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri


Dagskrá:

1. 0911064 - Kynning á íslenskri málstefnu.

Erindið lagt fram

2. 0911065 - Breyting á vistunartíma leikskóla

Bæjarráð felur skólamálafulltrúa að gera könnun á áhuga foreldra leikskólabarna á breytingu á vistunartíma og einnig að hann færi rök fyrir því að ekki verði um kostnaðarauka að ræða fyrir bæinn. Ástæðan er sú að það þarf að fara í aðhaldsaðgerðir vegna þess samdráttar og ástands sem ríkir í samfélaginu.

3. 0911066 - Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga

Málefninu vísað til frekari umræðu á næsta bæjarstjórnarfundi.

4. 0911067 - 46. sambandsþingi UMFÍ haldið í Reykjanesbæ 10.-11. október 2009.

Erindið lagt fram.

5. 0911068 - Gangstétt í Asturhópi, Grindavík.

Bæjarráð þakkar íbúum við Austurhóp ábendingar vegna gangstétta. Bæjaryfirvöld eru um þessar mundir í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og vísar erindinu til umræðu þar.

6. 0911069 - Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2010.

Bæjarráð hafnar erindinu

7. 0911070 - 298. fundur Skólanefndar FS 10. nóvember 2009.

Fundargerð lögð fram

8. 0909070 - Ósk um viðbótar fjárframlag til reksturs Saltfiskseturs Íslands.

Fundargerðin lögð fram.
Bæjarráð vísar erindinum í fundargerðinni til gerðar fjárhagsáætlunar.

9. 0911072 - Fulltrúi í framkvæmdanefnd Virkjunar.

Bæjarráð tilnefndir félagsmálastjóra sem fulltrúa Grindavíkurbæjar í nefndinni

10. 0911073 - Samþætting fjölskyldu- og atvinnulífs.

Erindi jafnrétisráðs lagt fram

11. 0911074 - Kveðja í jólablaði Faxa 2009.

Erindinu vísað til upplýsinga- og þróunarfulltrúa

12. 0911075 - Rafmagnsöryggi/þjónusta rafverktaka.

Erindi lagt fram

13. 0911076 - Eftirlitsskýrsla. Skoðun HES á íþróttahúsi

Erindi lagt fram

14. 0911077 - Eftirlitsskýrsla. Skoðun HES á sundlaug

Erindið lagt fram

15. 0911079 - Samningur vegna notkunar á Fréttaþjónustu NASDAQ OMX (GlobeNewswire)

Erindinu vísað til upplýsinga- og þróunarfulltrúa

16. 0911081 - Ársfundur Fjármálaeftirlitsins, þann 26. nóvember 2009.

Erindið lagt fram

17. 0911082 - Endurgreiðsla virðisaukaskatts 2009 vegna kaupa á búnaði fyrir slökkvilið.

Erindinu hafnað

18. 0911083 - Frumvarp til laga um kosningar til Alþingis(persónukjör) 102. mál. Beiðni um umsögn

Erindið lagt fram

19. 0911050 - Samningur um eftirlit og þjónustu á brunavarnabúnaði.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ganga frá samningsdrögum og leggja aftur fyrir bæjarráð

20. 0911054 - Endurskoðun á reglum um aðkomu bæjarins um atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu - 5. grein út frá sveitarstjórnarlögum. Viðbætur við 7. grein reglna "lánayfirlit frá viðskiptabanka."

Bæjarstjóra falið að gera breytingar og leggja breyttar reglur um aðkomu bæjarins að atvinnuuppbyggingu fyrir næsta bæjarstjórnarfund.

21. 0911084 - Þjónustuhús Tjaldsvæði - Tilboð í verkið "Fullgerð þjónustumiðstöð við tjaldstæði Grindavík."

Eftirfarandi tilboð bárust:

1. H.H. smíði ehf 51.770.446- 81,7 53.273.062-
2. Sveinbjörn Sigurðsson verktaki ehf 52.099.130- 82,2 55.099.130-
3. Markþing ehf 52.602.696- 83,0 51.737.491-
4. Grindin ehf 61.508.769- 97,1 61.507.033-
5. Alefli ehf 64.030.169- 101,1 64.030.169-
6. TSA ehf 71.857.025- 113,4 72.280.905-
7. Vörðufell ehf 72.841.086- 115,0 72.841.086-
8. Grindin ehf frávikstilboð 56.081.560- 56.243.833-
9. Vörðufell ehf frávikstilboð 62.316.112- 62.316.112-
10. Kostnaðaráætlun 63.348.960.- 100

Bókun fulltrúa D lista:
"Bæjarfulltrúi lýsir yfir ánægju með að heimamaður skuli vera lægstbjóðandi í verkið og hefur jafnframt verið sammála því að reist verði þjónustuhús við tjaldstæðið. En þær upphæðir sem hér um ræðir eru að mínu mati allt of vel í lagt miðað við þriggja til fjögurra mánaða notkun og legg ég það til að reynt verði að lækka byggingarkostnað umtalsvert í samráði við lægstbjóðanda."
     Fulltrúi D lista

Bæjarráð tekur tilboði lægstbjóðenda HH smíði upphæð 51.770.446 kr. Bæjarstjóra og forstöðumanni tæknisviðs er falið að ganga frá samningi. Tæknisviðinu falið að sjá um eftirlit með byggingunni.

22. 0910029 - Samningur um akstur milli Grindavíkur og Reykjanesbrautar í veg fyrir SBK rútuna - Svar frá Vogum varðandi samstarf um farþega frá sveitarfélögunum að vegamótum við Reykjanesbraut

Erindið lagt fram

23. 0908029 - Áframhaldandi samstarf Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju um æskulýðsstarf.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáæltunar

24. 0908030 - Beiðni um áframhald á styrk vegna organista Grindavíkurkirkju.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því fjárhagsáætlunar.

25. 0901048 - Innkaup vöru- og þjónustu hjá Grindavíkurbæ

Bæjarráð þakkar nefndinni um innkaup og þjónustu hjá bænum vel unnar upplýsingar og leggur áherslu á að innkaup fyrir stofanir bæjarins séu samræmd og ávallt sé gætt að hagstæðustu tilboðum.

26. 0911086 - Verð á skýlum.

Bæjarráð samþykkir að sett verði upp skýli við gatnamót Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar og vísar erindinu til fjárhagsáætlunar.

27. 0911085 - Friðarganga

Bæjarráð fagnar þessu framtaki skólanna í Grindavík og felur forstöðumanni tæknisviðs að það verði myrkvað samkvæmt óskum erindisins þann 15. des n.k. kl.09:00 að morgni.

28. 0811021 - Hópsskóli - nýr grunnskóli í Grindavík - 5 ára deild í Hópsskóla

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu:
"Bæjarráð felur skólamálafulltrúa í samráði við skólastjóra Hópsskóla að skoða það að 5 ára nemendum verði boðin skólavist á næsta skólaári, eða frá ágúst 2010 í leikskóladeild við Hópsskóla.
Námið yrði valkvætt fyrir börn og foreldra og greitt fyrir það á sama hátt og við leikskóla í Grindavík. Skólamálafulltrúa og skólastjóra falið að skila niðurstöðum í lok apríl 2010"

29. 0910027 - Málefni stöðu bæjarstjóra - starfslok

Bókun bæjarstjóra:
"Eins og upplýst var opinberlega þann 28. ágúst s.l., var undirrituð valin sóknarprestur á Fáskrúðsfirði. Í tilkynningu frá meirihluta þess efnis var einnig greint frá því að bæjarstjóri mundi áfram sinna störfum næstu mánuðina.
Í samráði við meirihluta hættir bæjarstjóri störfum þann 30. nóv. n.k. Samkvæmt samningi um launakjör bæjarstjóra er gert ráð fyrir sex mánaða biðlaunum. Undirrituð hefur hafnað þeim.
Að lokum þakka ég bæjarfulltrúum, öllu starfsfólki og íbúum Grindavíkurbæjar samstarfið og kveð með blessunaróskum bæjarfélag sem á mikla framtíð fyrir sér og ótal sóknarfæri til sjós og lands."
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir

Bókun:
"Bæjarráð þakkar bæjarstjóra samstarfið og óskar henni og fjölskyldu hennar velfarnaðar á nýjum vettvangi."

30. 0911087 - Fundargerð 603. fundar SSS þann 2. nóvember sl.

Varðandi 4. lið fundargerðar um tilnefningu í vinnuhóp vegna framtíðarsýnar á samstarf innan S.S.S, þá tilnefnir bæjarráð Petrínu Baldursdóttur og Sigmar Eðvaldsson.

31. 0911011 - Gerð þjónustusamnings í söluferli Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf.

Bæjarráð leggur til að þjónustusamningur verði ekki hluti af söluferli Kölku.

32. 0911006F - Ferða- og atvinnumálanefnd Grindavíkur - 9

Fundargerðin lögð fram til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:49.