Grindvíkingur vikunnar - Eiríkur Leifsson
Grindvíkingur vikunnar - Eiríkur Leifsson

Eins og greint var á frá á heimasíðunni í vikunni var Eiríkur Leifsson ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar og tekur hann við af Ingvar Guðjónssyni um áramótin. Eiríkur var fenginn til að svara nokkrum laufléttum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.

Nafn? Eiríkur Leifsson.
Fjölskylduhagir? Er í sambúð með Laufeyju Vilmundardóttur og saman eigum við dótturina Birtu sem er tveggja ára.
Starf? Er tæknimaður hjá Skyggni þessa stundina en verðandi framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Uppáhalds-
...maturinn?
Hamborgarahryggur með tilheyrandi og bökuðum baunum.
...drykkurinn? Ísköld lítil kók.
...staðurinn? Sófinn minn.
...leikarinn? Sean Connery.
...bókin? DaVincy lykillinn eftir Dan Brown.
...bíómyndin?  Star Wars.  
...íþróttamaðurinn? Ólafur Stefánsson og svo Ásgeir Sigurvinsson.
...liðið?  Auðvitað Grindavík og Chelsea að sjálfsögðu.
Hvert er þitt lífs mottó?  Ég nota ekki mottó . Eins og einn maður sagði þá eru mottó bara fyrir menn eins og Ingvar Guðjónsson.
Hvað er best við Grindavík? Grindavík er mjög góður bær, það er gott fólk hérna, gott að ala upp börn hér og mikið íþróttalíf sem við getum verið mjög stolt af.
Hvers vegna sóttir þú um starf framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar?  Eftir að hafa verið með puttana í kringum fótboltann undanfarið og haft alveg gríðarlega gaman og gott af, þá fannst mér að þetta væri eitthvað sem ég gæti hugsað mér að að starfa við og greip tækifærið þegar starfið var auglýst.
Í hverju felst starfið aðallega? Að hafa yfirumsjón með daglegum rekstri knattspyrnudeildarinnar.
 Verðum við með frambærilegt lið næsta sumar? Það held ég við þyrftum kannski að bæta við okkur 1-2 mönnum, þá er þetta komið.
Hver eru þín helstu áhugamál? Fótbolti er þar efstur á blaði en einnig les ég mikið.
Eitthvað að lokum? Ég vil hér með hvetja alla til að mæta á völlinn  í sumar og styðja við okkar menn.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut