Bæjarráð nr. 1219

1219. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 18. nóvember 2009 og hófst hann kl. 17:00.

Fundinn sátu:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Petrína Baldursdóttir, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Björn Haraldsson, Sigurður Enoksson (SE),

Fundargerð ritaði: Jóna Kristín Þorvaldsdóttir , bæjarstjóri

Formaður bæjarráðs óskaði eftir að tekið væri inn með afbrigði 2. liður 392 fundar hafnarstjórnar og er sá liður 19. mál á dagskrá eftirfarandi fundargerðar bæjarráðs:

Dagskrá:

1. 0809042 - Samningur við GRAL, Grindvíska atvinnuleikhúsið - Fulltrúar frá leikfélaginu óska eftir fundi við bæjarráð

Forsvarsmenn Grindvíska atvinnuleikhússins, GRAL, komu til fundar við bæjarráð til viðræðna um samstarfssamning við bæinn.
Bæjarráð óskar leikhópnum til hamingju með frábæra aðsókn að barnaleikritinu "Horn á höfði" og tekur vel í þá hugmynd að setja saman hóp til frekari viðræðna um framtíðarsamstarf leikfélagsins og bæjarins.

2. 0911043 - Gjaldskrá og reglur fyrir geymslusvæði Grindavíkurbæjar

Bæjarráð samþykkir að lækka gjaldskrá um 30%. Lykilgjald verður 10.000 kr.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og verða þær birtar á heimasíðu bæjarins ásamt breyttri gjaldskrá. Leigutekjur verða nýttar til viðhalds og fegrunar á geymslusvæðinu.

3. 0911051 - Beiðni um nýtt stöðugildi við tónlistarskólann og breytingu á deildarstjórastöðu.

Bæjarráð samþykkir ósk skólastjóra Tónlistarskólans að skipta 30% deildarstjórastöðu í tvær 15% stöður.
Bæjarráð samþykkir einnig ósk um kaup á De Capo kerfi, sem er gagnagrunnur og hýsing til að halda utan um starfsemi og tækjabúnað Tónlistarskólans og vísar erindinu áfram til fjárhagsáætlunar 2010.
Ákveðið er að önnur eldri útistofan við Grunnskóla Grindavíkur verði nýtt fyrir Tónlistarskólann frá og með áramótum.
Bæjarráð hafnar ósk um nýtt stöðugildi.

4. 0911037 - Áskorun íbúafundar til ríkisstjórnar Íslands vegna fjarskiptamastra sem sett voru á vegum Bandaríkjahers í landi Grindavíkur.

Eftirfarandi ályktun frá íbúafundi þann 9. nóvember sl. hefur þegar verið send til forsætisráðuneytis, utanríkisráðuneytis og varnarmálastofnunar:
,Áskorun til ríkisstjórnar Íslands vegna fjarskiptamastra sem sett voru á vegum Bandaríkjahers í landi Grindavíkur:
Það er sameiginleg niðurstaða íbúafundar sem haldinn var í Saltfisksetrinu í Grindavík þann 9. nóvember 2009, að fjarskiptamöstur sem staðsett eru í Grindavíkurlandi á vegum Bandaríkjahers verði fjarlægð hið fyrsta."

Bæjarráð tekur heilshugar undir áskorun íbúafundarins um að fjarlæga eigi möstrin frá byggðinni.

5. 0911062 - Endurbygging sela.

Bæjarráð býður Gísla G. Sigurðssyni til fundar um málið.

6. 0911061 - Minnt á verkfallslista.

Erindið lagt fram

7. 0911042 - Skiptastjórar í þrotabúi Nýsis hf.

Grindavíkurbær hafnar því alfarið að Þrotabú Nýsis hf. framselji réttindi og skyldur samkvæmt samningi við Grindavíkur þann 31. mars 2000 til Grípis hf. Jafnframt áréttar Grindavíkurbær það að bæjaryfirvöld hafa áður lýst yfir áhuga á að skoða kaup á húsnæði leikskólans Króks, að Króki 1 í Grindavík.

8. 0911039 - Menningarverðlaun

Bæjarráð tekur jákvætt í þau erindi frístunda- og menningarfulltrúa frá 61. fundi menningar- og bókasafnsnefndar, að bæjarfélagið veiti viðurkenningu vegna menningarstarfs í Grindavík og einnig að tilnefndur sé bæjarlistamaður Grindavíkur.
Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu frá nefndinni vegna þessara erinda.

9. 0911048 - Minnisblað um fjárlagafrumvarp 2010.

Minnisblað um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir 2010 ber merki þess efnahagsástands sem ríkt hefur í þjóðfélaginu eftir bankahrunið á síðasta ári.

10. 0911047 - Alþjóðleg athafnavika.

Erindið lagt fram um hina Alþjóðlegu athafnaviku sem stendur yfir í 100 löndum dagana 16. nóvember til 22. nóvember

11. 0911044 - Krafa um að jarðraski á Laufáslandi verði nú þegar hætt

Bæjarráð hafnar kröfunni, þar sem framkvæmdum við sjóvarnir vegna landbrots er lokið.

12. 0911064 - Kynning á íslenskri málstefnu.

Erindið lagt fram

13. 0911018 - Kostnaður vegna giringar á lóðamörkum Hraunbraut 2.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

14. 0911049 - Beiðni um nýtt heilsársstöðugildi í þjónustumiðstöð

Bæjaráð hafnar erindinu.
Bókun:
"Við fjárhagsáætlun næsta árs, er ekki gert ráð fyrir fjölgun stöðugilda hjá bænum. Í vinnu við gerð fjárhagsáæltunar næsta árs er stefnt að miklu aðhaldi í öllum rekstri bæjarfélagsins."

15. 0911045 - Krafa á Grindavíkurbæ.

Bókun:
"Bæjarráð treystir því að stofnanir sveitarfélagsins taki tillit til þeirra sjónarmiða er fram koma í úrskurði ráðuneytisins þegar stjórnvaldsákvarðanir eru teknar. Að öðru leiti er kröfum í erindinu hafnað"


16. 0910065 - Gæsla vegna íþróttakennslu í grunnskólanum

Bæjarráð óskar eftir því að forstöðumaður íþróttamannvirkja komi á næsta fund bæjarráðs til viðræðna um erindið.

17. 0911004F - Menningar- og bókasafnsnefnd Grindavíkur - 61

Fundargerðin lögð fram til kynningar


18. 0911003F - Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkur - 154

Fundargerðin lögð fram til kynningar

19. 0812007 - Frágangur SVN Í Grindavík

Málið tekið inn á dagskrá með afbrigðum.
Varðar 2. lið fundargerðar hafnarstjórnar 17. nóvember sl. um förgun steypubrota vegna niðurrifs SVN við Ægisgötu 2 í Grindavík.

Bæjarráð tekur undir eftirfarandi bókun 392 fundar hafnarstjórnar dags 17. nóvember 2009:
"Þar sem ekki hefur verið gengið frá skipulagi, á því svæði sem áætlað er að farga efninu, sér hafnarstjórn sér ekki fært að leyfa losun enda er það álit Siglingastofnunar að múrbrot skuli vera smátt kurluð og öll aukaefni hreinsuð frá. Til að halda múrbrotunum á sínum stað skal byggja fyrirstöðugarð sem samanstendur af kjarna og grjóthleðslu utaná með tvöfaldri röð af grjóti fyrst 0,3 tonn - 1 tonn og svo utaná grjót sem er 1 - 2,5 tonn. Þar sem verklýsing frá Mannviti er ekki í samræmi við skoðun Siglingastofnunar og við ekki í stakk búin til að leggja í kostnað vegna fyrirstöðugarðs teljum við ekki ráðlagt að fara í þessa framkvæmd núna."

Bæjarráð hafnar því erindinu um losun efnis í Svíragarð og vísar erindinu til tæknisviðs til að finna annan hentugan stað til losunar.

Fleira ekki gert.