Ár 2009, miðvikudaginn 11. nóvember var haldinn 9. fundur í atvinnu- og ferðamálanefnd Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofunni og hófst 20:00.
Mættir: Jakob Sigurðsson, Ingimar Waldorf, Sigurður Kristmundsson og Heiðar Hrafn Eiríksson. Einnig sat fundinn Þorsteinn Gunnarsson upplýsinga- og þróunarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. 0911053 - Starfsmaður atvinnu- og ferðamálanefndar.
Nefndin fagnar því að hafa fengið starfsmann sem gerir starf nefndarinnar markvissara og öflugra. Upplýsinga- og þróunarfulltrúi verður hér eftir starfsmaður nefndarinnar og ritar fundargerð.
2. 0911054 - Endurskoðun á reglum um aðkomu bæjarins um atvinnuppbyggingu í sveitarfélaginu
Nefndin leggjur til við bæjarráð að eftirfarandi verði bætt við 7. grein reglna um aðkomu bæjarins um atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu (í þriðju línu):
„- Lánayfirlit frá viðskiptabanka."
Nefndin leggur til við bæjarráð að skoðað verði hvort reglur um aðkomu bæjarins að atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu standist sveitastjórnarlög og er þar einkum vísað til 5. greinar þar sem fjallað er um lán sveitarfélagsins til einstakra félaga.
3. 0911055 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar.
Áhugi hefur kviknað á einhvers konar samstarfi á milli atvinnu- og ferðamálanefndar Grindavíkurbæjar og menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarfélögin eiga ýmislegt sameiginlegt í ferðaþjónustu.
Nefndin ætlar að bjóða menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar í heimsókn seinni partinn í janúar til þess að nefndirnar geti borið saman bækur sínar og mun Heiðar setja sig í samband við Gunnar Axelsson sem á sæti í nefnd Hafnarfjarðarbæjar.
4. 0911056 - Skoðunarferð í fyrirtæki
Í janúar ætlar nefndin að heimsækja fyrirtækið Hafnot, sem fékk styrk til atvinnuuppbyggingar, til þess að kynna sér starfsemina. Einnig er ætlunin að heimsækja fleiri fyrirtæki í bænum.
5. 0911057 - Kannanir um atvinnuuppbyggingu og Suðurstrandarveg.
Nefndin felur upplýsinga- og þróunarfulltrúa að hafa samband við háskóla til að kanna hvort nemendur hefðu áhuga á því að vinna lokaverkefni í sínu námi fyrir nefndina. Ýmsar hugmyndir voru ræddar, m.a.:
- Hvaða eftirspurn er eftir þjónustu í Grindavík miðað við þá atvinnuuppbyggingu sem er framundan á svæðinu.
- Könnun um Suðurstrandarveginn og hvaða áhrif fullkláraður vegur hefur á ferðaþjónustu, umferð, íþróttamannvirki, atvinnuuppbyggingu o.fl.
- Hvað þarf til þess að fá skemmtiferðaskip til þess að hafa viðkomu í Grindavík?
6. 0911058 - Skilti o.fl. í samstarfi við Bláa lónið
Nefndin ætlar að senda Bláa lóninu bréf þar sem óskað er eftir fundi til þess að ræða hver aðkoma Grindavíkurbæjar getur verið varðandi auglýsingaskilti, auglýsingabæklinga o.fl. fyrir bæinn við Bláa lónið til þess að fá fleiri ferðamenn til Grindavíkur.
7. 0911059 - Leiðsögukerfi í iPhone
Aðili sem hefur hannað leiðsögukerfi í iPhone hefur óskað eftir því að fá að hitta nefndina til þess að kynna verkefnið. Nefndin tekur vel í erindið og stefnir að því að hitta þennan aðila við fyrsta mögulega tækifæri.
Fundi slitið kl. 22:00.