Undankeppni söngvakeppni Samfés
Undankeppni söngvakeppni Samfés

Undanúrslit söngkeppni Samfés suð- suðvestur riðill eða USSSSR verður haldin í Sjálandsskóla í Garðarbæ laugardaginn 14. nóvember n.k.
Fulltrúi Þrumunnar verður hljómsveitin Amanda who are you. Axel Bergmann og Viktor Atli munu í sameiningu sjá um söng. Jafnframt spilar Viktor á gítar, Axel á bassa og verður trommusláttur í höndum Kjartans.
Ef áhugi er fyrir hendi verður farin hópferð í Garðabæinn. Þeir sem hafa áhuga á slíku eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig í Þrumunni fyrir fimmtudaginn 12. nóvember. Þátttökugjald er 2.500 kr. og er innfalið aðgangur á söngvakeppni og ball + rúta. Skila þarf inn leyfisbréfi frá foreldrum.

Dagskrá:
Kl. 13:30 Lagt af stað.
Kl. 14:00 - 17:00 Æfingar fyrir söngvara og popplið. Þruman er með skráðan tíma kl. 15:00.
Kl. 19:00 Söngkeppni hefst.
Kl. 21:00 Dj ?? leikur fyrir dansi.
Kl. 22:00 - 23:30 Hljómsveitarball
Kl. 23:45 Brottför frá Garðabæ
Kl. 00:30 Heimakoma í Grindavík

Aðrar upplýsingar:
Veitingasala opnar kl. 14:00 á laugardeginum. Pizzur, gos og fleira á vægu verði.

Ekki er í boði að drykkjarföng séu tekin með sér inn á keppnina, þ.m.t. orkudrykkir.

Sundlaugin í Ásgarði sem er við hliðina á Garðalundi. Tilboðsverð 50 kr. pr. mann í laugina og greitt á staðnum.

Samfés hefur gefið það út að syngja skuli á íslensku.