Grindvíkingur vikunnar er Harald Örn Kristjánsson. Málbjörg, félag um stam hér á landi, veitti honum hvatningarverðlaun á dögunum en þau eru veitt þeim einstaklingi sem staðið hefur sig vel í starfinu á árinu sem er að líða. Hann tók þátt í evrópsku ungmennamóti (ELSA YOUTH meeting) í júlí sem haldið var í Englandi og í Nordisk 2009 sem var ráðstefna norrænu stamfélanana sem haldin á Kirkjubæjarklaustri í september.
Fjölskylduhagir? Bý hjá foreldrum.
Starf? Vinn hjá Einhamri.
Uppáhalds-
...maturinn? Tortilla.
...drykkurinn? Pepsi.
...staðurinn? Grindavík / Gigleswick Englandi.
...leikarinn? Gerard Butler.
...söngvarinn? Pavarotti.
...bókin? David Attenborough.
...bíómyndin? Jurasic Park.
...íþróttamaðurinn? Wayne Rooney.
...liðið? Manchester United.
Hvert er þitt lífs mottó? Að koma fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
Hvað er best við Grindavík? Stutt til Reykjavíkur.
Hvernig kom til að þú fórst að taka þátt í félagsstarfi eins og Elsa youth meeting og ráðstefnu norrænna stamfélaga? Vegna þess að ég stama og frétti af starfinu í gegnum Málbjörgu sem er félag um stam.
Hvernig gengur þér að fóta þig í tilverunni í ljósi þess að þú stamar? Bara vel, en oft mæti ég miklu þekkingarleysi. Oft forðast fólk að tala við þá sem stama.
Misjafnt er hvernig fólk bregst við í samskiptum við þá sem stama, áttu ráð fyrir það fólk? Aldrei að klára settningar fyrir fólk sem stamar.
Hver eru þín helstu áhugamál? Tölvan, teikna og lyfta með Einari bróðir mínum sem er alveg að verða besti einkaþjálfari í Grindavík.
Eitthvað að lokum? Bara að hvetja þá sem stama eða eiga börn sem stama að kíkja á stam.is eða hafa samband við félagið.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
