Fyrirtæki vikunnar - Verslunin Aþena vekur athygli
Fyrirtæki vikunnar - Verslunin Aþena vekur athygli

Hannyrða-, tómstunda og gjafavöruverslunin Aþena opnaði að Hafnargötu 6 um miðjan mars. Þrátt fyrir að vera ekki á mörgum fermetrum hefur verslunin glettilega mikið úrval. Eigendur Aþenu eru Pétur Breiðfjörð Reynisson, Elín Vilbergsdóttir og Sæmundur Halldórsson og hafa þau farið nýjar leiðir í innflutningi á lopa.

,,Við í versluninni Aþenu höfum verið að stækka mikið við okkur að undanförnu þó að húsnæðið sé frekar lítið eins og er. Nú í dag vorum við að taka inn færeyskan lopa með mikilli gleði þar sem að Færeyingar eru jú bestu vinir okkar Íslendinga. Við erum eina verslunin á Suðurnesjum með þessa vöru og ein af þremur sem hafa fengið færeyska lopan í sölu ef höfuðborgarsvæðið er meðtalið hér á skaganum. Við höfum flutt inn vinsælt ullarband frá Danmörku sem er selt í tveimur öðrum verslunum á Íslandi svo vitað sé. Einnig höfum við flutt inn tölur frá Kína og erum við að bjóða verð á tölum sem er fjórðungi ódýrara en gerist og gengur því varan er milliliðalaus frá framleiðanda og leyfum við kúnnanum að njóta þess," segir Pétur.

Verslunin hefur vakið athygli á Suðurnesjum og víða á skömmum tíma án nokkurrar auglýsingar. Pétur segir mörg dæmi um heimsóknir frá Suðurnesjum, Reykjavík, Hveragerði og Selfossi.

,,Einnig má nefna að við höfum verið að senda vörur í póstkröfu og að fólk hringir annars staðar frá til að láta taka vöru frá þar sem að varan fæst ekki annarsstaðar. Við erum nú í samstarfi við Aðalbraut með prjónakaffi og er næsta prjónakaffi laugardaginn 24. október kl. 10 í Aðalbraut. Þar mun höfundur bókarinnar Hlýjar Hendur koma og kynna bók sína," sagði Pétur að endingu.

Fyrir utan lopa og garn býður verslunin upp á heklunálar, ísaummyndir, bocilla, rennilása, tölur, tvinna, perlur, málningarmyndir, skafmyndir, plastmódel, sængurfagnað og ýmislegt handverk fyrir fólk á öllum aldri. Einnig er boðið upp á sokka, nærföt, boli og fleira fyrir herrann, dömuna og á börnin.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi