Fyrsta skóflustungan tekin að metanólverksmiðjunni
Fyrsta skóflustungan tekin að metanólverksmiðjunni

Eftir eitt ár verður hafin framleiðsla á metanóli í verksmiðju í Svartsengi, í landi Grindavíkur, gangi áform eftir. Til þess verður nýttur koltvísýringur úr útblæstri virkjunar HS Orku og þannig framleitt eldsneyti á bíla. Bandarísk-íslenska eignarhaldsfélagið Carbon Recycling International tók í dag skóflustunguna að fyrstu metanólverksmiðjunni sem reist hefur verið í viðskiptalegum tilgangi í heiminum, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Í fyrsta áfanga verða framleiddar ríflega tvær milljónir tonna af metanól með því að nýta þrjár milljónir tonna af koltvísýringi í útblæstri frá virkjuninni í Svartsengi. Verksmiðjan á að verða tilbúin eftir eitt ár og þá verður allt bensín sem selt verður á stöðvum Olís blandað metanóli. Farartæki knúin með þessu eiga að menga minna.

Unnið hefur verið að verkefninu síðastliðin þrjú ár og kostnaðurinn við verksmiðjuna er um einn milljarður króna.

Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjórnar, var einn af þeim aðilum sem tók fyrstu skóflustunguna. Þá færði hann K. C. Tran, forstjóra CRI, mynd af Grindavíkurbæ að gjöf í tilefni dagsins. Á meðal fjölmargra viðstaddra við skóflustunguna voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Georg Olah, nóbelsverðlaunahafi í efnafræði 1994 sem fer fyrir ráðgjafaráði fyrirtækisins.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíð starfsmanna Grindavíkurbæjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samið um almenningssamgöngur á Suðurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mætir Skagafirði í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock með 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góðri vetrarvertíð
fim. 2. feb. 2012    Viðhaldsstjóri og vaktmaður óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiðslu æfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteå vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsræktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sækir ÍR heim
mið. 1. feb. 2012    Kynningarátak bæjarins fyrir sjómenn vekur athygli
mið. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
mið. 1. feb. 2012    Lokadagur til að sækja um í Slökkviliðinu
mið. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
mið. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksæfingar hjá U16
mið. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
mið. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut