Undirrituð verður víst að viðurkenna það að henni sækir mikill dapurleiki eftir að hafa séð athugasemdir sjálfstæðismanna hér í Grindavík á heimasíðu bæjarins í dag. Er það furða að maður spyrji sig út í hvað eru menn komnir?
Til mín kom ósk frá ritstjóra Járngerðar um hvort formaður bæjarráðs gæti skrifað grein í væntanlegt blað. Bæjarstjóri hefur séð um að skrifa pistla í öll Járngerðarblöðin og gert það vel en er fjarverandi eins flestir vita. Þegar ég ákvað að skrifa mína grein, hafði ég hana ekki í huga sem árás á andstæðinga mína í stjórnmálum hér, heldur sem hvatningargrein til okkar sem í þessum málum störfum til að starfa saman og bera virðingu fyrir hvort öðru þó að skoðanir okkar færu ekki saman bæði hvað varðar menn og málefni!
Mér þykir miður ef menn kjósa að nota tækifærið og lesa í gegnum grein mín á þann hátt sem lýst er í þessari ályktun einungis til að koma höggi á persónuna sem gegnir því starfi að vera formaður bæjarráðs.
Mér þykir miður að hið frábæra blað Járngerður sem gefið er út fyrir okkur Grindvíkinga fyrir allar skoðanir sé sakað um að vera pólitískt kynningarrit fyrir undirritaða.
Ég veit svei mér ekki á hvaða plan menn eru komnir hér í pólitískum skrifum og árásum.
Hér hafa menn lagst ansi lágt í árásum á bæjarstjóra okkar bæði í riti og orðum. Einnig hafa menn lagt ansi lágt gagnvart undirritaðri í riti sérstaklega. Ég gæti ímyndað mér að því ætti að halda áfram á komandi kosningavetri, a.m.k dreg ég þá ályktun núna.
Ef það verður raunin þá verði mönnum að góðu!
Undirrituð mun ekki taka þátt í þessum sandkassaleik og fara niður á plan D.
Hins vegar er það nú þannig að þegar vestfirsku genin mæta mótlæti eflast þau bara!
Að lokum þetta hvet ég Grindvíkinga til að lesa grein mína í Járngerði og dæma fyrir sig sjálfa hvort hún sé skrifuð í einhverri sjálfupphafningu eða til að troða á öðrum. Það var engan veginn markmið mitt !
Áfram Grindavík !
Petrína Baldursdóttir
formaður bæjarráðs.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
