Um síðustu helgi var landsmót Samfés á Sauðárkróki þar sem saman voru komnir unglingar frá flestum félagsmiðstöðvum á landinu. Grindvíkingurinn Viktor Gunnarsson var kjörinn í stjórn ungmennaráðs Samfés og var hann fenginn til þess að svara nokkrum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar. Viktor er á kafi í tónlist og spilar á gítar auk þess sem hann aðstoðar Grindavíkurbæ við uppákomur sem hljóðmaður.
Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum félagsmiðstöðva landsins hafi vettvang til að mynda tengsl og kynnast nýjum hugmyndum sem hægt er að nýta í starfi félagsmiðstövanna. Landsmótið er þó alls ekki einskorðað við fulltrúa úr unglingaráðum.
Nafn? Viktor Gunnarsson.
Fjölskylduhagir? Bý hjá foreldrum mínum, þeim Gunnari Jóhannessyni og Andreu Hauksdóttur.
Starf? Hljóðmaður Grindavíkurbæjar.
Uppáhalds-
...maturinn? Jólamaturinn.
...drykkurinn? Kókómjólk.
...staðurinn? Heima.
...leikarinn? Úff... ég ætla að giska á Berg Ingólfs eða Víði Guðmunds.
...bókin? Lærið að kafa.
...hljómsveitin? Agent Fresco.
...íþróttamaðurinn? Guðrún systir mín er nú bara uppáhalds íþróttamaðurinn.
...liðið? Grindavík.
Hvað er best við Grindavík? Stærðin og félagskapurinn.
Hver eru þín helstu áhugamál? Hljóðfæri, tónlist og félagsmál.
Fyrir þá sem ekki vita, hvað er Samfés? Samfés eru Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi.
Hvaða viðburði eruð þið að skipuleggja í stjórninni? Við munum koma til með að skipuleggja viðburði eins og Stíl og Samfés-hátíðina og þar fram eftir götunum.
Hvernig eru grindvískir unglingar? Ég myndi segja að þeir séu frábærir í flest alla staði.
Hvað eruð þið helst að gera í Þrumunni? Spila billjard, þythokki, borðtennis og fleira.
Þú ert á kafi í tónlistinni, hvað ertu helst að gera þessa dagana? Við erum á fullu við að undirbúa okkur fyrir Samsuð í Fjörheimum
Eitthvað að lokum? Ég vil bara þakka fyrir mig.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
