Undankeppni fyrir söngvakeppni SAMSUÐ fer fram í Fjörheimum 16. október n.k. Sigurvegarar úr þessari keppni taka svo þátt í söngvakeppni Suðurlands sem fer fram í Garðabæ þann 14. nóvember. Úr þeirri keppni komast svo fimm til sex þátttakendur sem fara í aðalkeppnina sem verður í Laugardalshöllinni í byrjun mars á næsta ári. Þar sem miklar líkur eru á því að aðalkeppninni verði sjónvarpað beint á RÚV verða öll lög sem komast í úrslit að verða sungin á íslensku. Því er gerð krafa um það strax í undakeppnunum að allir syngi á íslensku. Reglur keppninar eru:....
Reglur varðandi lagið:
• Lengd lags má ekki fara yfir 3 mín. - dregið verður niður í lagi eftir 3 mínútur og gæti það þýtt mínus stig hjá dómnefnd.
• Undirspil skal vera algerlega án söngs (forsöngs) bakraddir eru þó leyfilegar. ATH! - Það er ekki hægt að taka venjulegt lag og draga niður í söngnum!
• Mikilvægt er að keppendur fái þjálfun í að syngja í míkrafón hjá sinni félagsmiðstöð til að tryggja að flutningurinn komist til skila.
• Ef að keppandi tilkynnir lag sem þegar hefur verið skráð til keppni skal hann ásamt félagsmiðstöðinni finna annað lag til að syngja þar sem hvert lag verður aðeins sungið einu sinni. Það er því öruggara að skrá lagið fyrr en seinna.
• Lögum sem ekki eru spiluð "live" verður að skila til Samfés í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík. Lögin verða að koma á geisladiski eða á mp3 formi með netpósti um leið og skráning á sér stað.
• Textum skal skilað með lögunum hvort sem hann er íslenskur, enskur, upprunalegur, þýddur, frumsaminn o.s.frv.
• Keppendur þurfa að vera búnir að tryggja að gæði lagsins séu í lagi, bæði hljóðgæðin og að engar rispur eða bilanir séu í því.
Aðstaða á sviði:
• Fullt backline, þ.e. trommursett, gítar- og bassamagnari og hljómborð.
• Leyfilegt er að hafa önnur létt hljóðfæri s.s. fiðlu, blásturshljóðfæri og kassagítar.
• Einungis hægt að nota hljóðfæri sem hægt er að stinga beint í samband með "jack tengi" eða hægt að stilla upp fyrir framan einn míkrófón.
• Vinsamlega athugið ástand hljóðfæranna, þ.e. strengir séu í lagi, rafhlöður til staðar o.fl.
• Allir hljóðfæraleikarar á sviði verða að vera á aldrinum 13-16 ára (í 8.-10. bekk)
• Félagsmiðstöðvar þurfa að passa upp á að flutningur viðkomandi liðs sé innan siðsamlegra marka s.s. klæðnaður og framkoma. Samfés áskilur sér rétt til þess að stöðva atriði sé þessu ekki nægilega fylgt eftir.
• Keppendum verður raðað upp af handahófi í keppninni.
• Boðið verður upp á hljóðprufur og rennslisæfingu á keppnisdegi. ATH ekki er víst að hægt sé að renna í gegnum allt lagið.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
