Jón Guðmundsson hefur tekið við sem vert á ný á Sjómannastofunni Vör eftir 20 ára hlé. Undanfarin ár hefur þessi veitingastaður gengið undir nafninu Brim en það yljar mörgum Grindvíkingum um hjartarætur að staðurinn skuli nú heita Sjómannastofan Vör á nýjan leik. Vör er fyrirtæki vikunnar á heimasíðunni.
Jón segist eiga nokkur góð ár eftir í bransanum en hann hefur m.a. kokkað á ýmsum skipum í gegnum tíðina og rak Vör á sínum tíma í 10 ár með glæsibrag eins og margir Grindvíkingar muna eftir og veit því nákvæmlega hvað hann er að takast á við.
,,Við ætlum að gera ákveðna tilraun fram að áramótum. Við höfum lengt opnunartímann. Við opnum snemma að vanda og nú er opið til klukkan átta á kvöldin, ekki bara til tvö á daginn eins og var. Þá höfum við jafnframt opið allar helgar til átta á kvöldin en það var lokað," segir Jón á milli þessi sem hann afgreiðir viðskiptavini.
Jón vonast til þess að þessi breytti opnunartími færi Vör fleiri viðskiptavini. Hann segir að nóg hafi verið að gera í hádeginu í september en hann vonast til þess að fá fleiri viðskiptavini í kaffi og í kvöldmat.
Hann bendir á að um leið og eitthvað er um að vera í bænum hjá verktökum, eins og malbikunarframkvæmdir í vikunni, koma 10 karlar í hádegismat. Ef frystitogari er í landi koma aðrir 10 karlar í hádeginu. Þá hafa komið töluvert margar rútur með ferðafólk nú í september.
Sem fyrr er boðið upp á ekta íslenskan heimilismat í hádeginu, yfirleitt er hægt að velja um tvennt.
,,Útlendingarnir eru alveg vitlausir í fisk og fá aldrei nóg af honum, nema þá helst útlendu fótboltastrákarnir. Þeir vilja helst kjöt í matinn líkt og Íslendingarnir," segir Jón.
Hann vonast til þess að vel takist til með reksturinn næstu mánuði og biður alla hjartanlega velkomna á Sjómannastofuna Vör.


Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
