Mikla athygli vakti fyrr á þessu ári þegar hið rótgróna fyrirtæki Glerborg flutti framleiðslu sína til Grindavíkur en Glerborg er fyriræki vikunnar. Eigendur Glerborgar eru Grindvíkingurinn Vignir Óskarsson, Óskar Þórðarson, Jón Sveinsson og Höskuldur Einar Pálsson framkvæmdastjóri sem svaraði nokkrum spurningum um starfsemi Glerborgar.
Um 16 manns vinna hjá Glerborg. Höskuldur var fyrst spurður að því hvers vegna þeir ákváðu að flytja fyrirtækið til Grindavíkur?
„Eftir að hafa tekið saman alla kosti og galla sem fylgja svona flutningum, þá ákáðum við að byggja starfsemina upp í Grindavík. Helstu kostir þess að vera í Grindavík samanborið við stór-Reykjavíkursvæðið er lægri leiga á húsnæði og mikil jákvæðni bæjaryfirvalda í garð fyrirtækisins. Ekki skemmdi svo að hluti af eigandum eru Grindvíkingar."
- Hvernig gengur svo starfsemin hér suður með sjó?
„Þegar svona starfsemi er flutt á milli staða þá raskast reksturinn verulega. Við höfum lent í ýmsum erfiðleikum þessa fyrstu mánuði hér í Grindavík, besta dæmið er vatnið, en ekki náðist að þrífa glerið nægilega vel á tímabili. En með hjálp góðra fyrirtækja hér í Grindavík höfum við náð að yfirstíga alla byrjunarörðugleika og horfum bjartir fram á veginn."
- Hvernig er verkefnastaðan?
„Í okkar áætlunum gerðum við að sjálfsögðu fyrir ákveðinni minnkun í sölu í samanburði við síðustu ár. Með það í huga er óhætt að segja að verkefnastaðan er mjög góð akkúrat þessa stundina, bæði hvað varðar glugga og gler. Gluggaverksmiðjan er með næg verkefni fram í nóvember, en glerverksmiðjan er að keyra á viku afgreiðslufresti þannig að þar erum við ekki með staðfesta sölu til langs tíma."
- Hvaða augum lítur þú á framtíðina fyrir hönd fyrirtæksins?
„Það er augljóst að í kreppunni sem við göngum í gegn um þessa dagana að nánasta framtíð verður ekki auðveld, en til lengri tíma litið þá lítur framtíðin mjög vel út. Til að styrkja grunnreksturinn höfum við verið að leggja áherslu á að ná inn viðskiptamönnum sem eru að versla allt árið. Sem dæmi erum við þessa dagana að ganga frá samningi við Reykjavíkurborg um framleiðslu á öllu gleri sem þeir munu þurfa næsta árið."
Höskuldur vildi koma því á framfæri við Grindvíkinga að Glerborgarmenn eru afar ánægðir með móttökurnar í bænum og alveg ljóst að stór hluti Grindvíkinga verslar við þá.


Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
