Barna- og fjölskylduleikritið með Horn á höfði var frumsýnt síðasta sunnudag við glimrandi undirtektir. Grindvíska atvinnuleikhúsið, GRAL, hefur svo sannarlega sett mikinn svip á menningarlíf bæjarins, fyrst með „21 manns saknað" og svo með „Horn á höfði". Leikarinn og Grindvíkingurinn Víðir Guðmundsson er hluti af GRAL og hann svaraði nokkrum laufléttum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.
Nafn? Víðir Guðmundsson.
Fjölskylduhagir? í sambúð með Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.
Starf? Leikari.
Uppáhalds-
...maturinn? Sushi.
...drykkurinn? Kaffi.
...leikarinn? Sveinn Ólafur Gunnarsson eða Svenni ó.
...bókin? Bókin sem Þórdís var að gefa út í dag „Ofbeldi í Íslandi á mannamáli".
...íþróttamaðurinn? Dennis Rodmann og Jón Páll.
...liðið? Grindavík að sjálfsögðu.
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér?
Börnin mín, konuna, nægan mat og sólbekki og vatn.
Hvað er best við Grindavík? Fólkið sem býr þar.
Hversu mikil vinna er að baki Horn á höfði? Mjög mikil...margir dagar, vikur mánuðir, frá 9-23.
Hvernig er að reka atvinnuleikhús í Grindavík? Það kemur í ljós á næstu mánuðum.
Ef vel tekst til, á að reyna að fara með leikritið í Borgarleikhúsið? Nei, en það fer norður á Akureyri til LA.
Hvers vegna ákvaðst þú að verða leikari? Af því það er skemmtilegt og gefandi, og vonandi færir það smá gleði inní líf fólks.
Hver eru þín helstu áhugamál? Dýfingar og bridds.
Eitthvað að lokum? Ramalama lama sjúabbsjúaríarí, jibbidíbúmmdíbúmm.

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
