
Eitt af stóru hagsmunamálum Grindvíkinga í dag er að fá framhaldsskóla í Grindavík. Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti vorið 2008 að byggja og starfrækja menntaskóla í Grindavík en undirbúningsvinna hófst haustið 2006.
Gert er ráð fyrir að skólinn verði einkarekinn af Grindavíkurbæ með þjónustusamningi við menntamálaráðuneytið. Skal hann skipulagður með þriggja ára námi til stúdentsprófs ásamt styttri námsbrautum með nýju framhaldsskólalögin til grundvallar.
Í stuttu máli viljum við herma sem mest eftir Menntaskólanum í Borganesi en þar er fyrirkomulag kennsluhátta sem við hrífumst af. Kennt er lengur yfir veturinn, símat í stað annarprófa, hægt að skoða kennslustundir á netinu, o.fl.
Foreldrar verða vonandi vör við það í buddunni því að nemendur MG munu m.a. leigja bækur og tölvu. Þá verður enginn akstur til Reykjanesbæjar með tilheyrandi kostnaði. Þá geta nemendur MG skroppið heim og borðað heima hjá sér sem hlýtur að teljast kostur.
Nokkrir fundir hafa verið haldnir með núverandi menntamálaráðherra og er málið að þokast í rétta átt. Vinstri grænir leggja mikla áherslu á að skólinn hefji störf haustið 2010. Þá er rétt að nefna það að einhugur er í bæjarstjórn um málið.
Garðar Páll Vignisson
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
