Ađgát skal höfđ í nćrveru sálar !!

Ef ég á að vera alveg heiðarleg er mig lengi búið að langa til að ræða málefni um hvernig umræðan/orðræðan er stundum svolítið öfugsnúin í okkar samfélagi.

Ég hef oft rekið mig á að búið er fyrirfram að ákveða fyrir mann einhverja hluti sem maður kannast ekkert við og svo er setið og rætt um það út í bæ. Yfirleitt er það nú þannig að sögurnar eru settar fram til að tortryggja mann eða til að koma höggi á viðkomandi. Nú er sú sem þetta skrifar örugglega ekki ein um lenda í svona aðstöðu.

Mér dettur til hugar að nefna sem dæmi þegar undirrituð lét af störfum sem leikskólastjóri vegna höfnunar á umsókn um launað námsleyfi og mitt inn í því ferli urðu meirihlutaskipti hér í Grindavík og undirrituð lenti í þeirri aðstöðu að vera þátttakandi í nýjum meirihluta. Þá var fljótt að heyrast að nú yrði námsleyfið örugglega tekið á fullum launum. Hver skáldaði þetta? Námsleyfið kom myndun meirihluta ekkert við að mínu viti. Námsleyfi er hluti af kjarasamningi sem menn brutu eins og þá lysti. Væntanlega í pólitískum tilgangi.

Eða þegar skólastjórastaðan við Hópsskóla var auglýst. Margoft var fullyrt í umræðunni að Petrína ætlaði sér sko að verða skólastjóri þar! Ég held að Petrína hafi verið sú sem var öruggust um að hún myndi aldrei sækja um svona stöðu a.m.k. meðan hún er í pólitík.

Hvernig er nú með bæjarstjórastöðuna - er ekki Petrína búinn að ganga með stöðuna lengi í maganum? Spyr sá sem ekki veit, en eitt veit Petrína: Hún er grunnskólakennari í Grindavík og hefur svo fullan hug á að halda því áfram og hefur ekki orðið vör við þennan bæjarstjóra í maganum.
Hefur hins vegar tekið eftir að maginn hefur eitthvað bætt spiki utan á sig svona í áranna rás!

Hægt væri nú að telja meira upp svo ekki sé nú minnst á frekjuna í kerlingunni eða peningasýkin í henni. Vill hún ekki fá allt greitt sem hún gerir? Hvað sagði ekki oddviti minnihlutans í hinu fræga spádómsblaði sínu sem hann gaf út og hét góðan daginn Grindvíkingur.

Já þegar maður gefur kost á sér til þess að starfa á vettvangi stjórnmálanna er maður þá ekki opinber persóna og er þá eitthvað hægt að vera að væla um svona. Nei það er ekki hægt að væla neitt hins vegar finnst manni að fólk þurfi nú stundum aðeins að hugsa hvað það setur út úr sér og lætur birta á prenti.


Einelti.

Oddviti sjálfstæðismanna hefur stundað það um alllangt skeið að nota gífuryrði og leiðindi hvenær sem hann opnar muninnn og setur línur á blað og þá sérstaklega í garð okkar kvennanna sem störfum hér fyrir okkar bæjarfélag.

Það er svo komið að báðar lýstum við því yfir að frekar vildum við vera í minnihluta en að starfa í meirihluta með þessum manni.

Þeir sem eitthvað fylgjast með í stjórnmálum vita að stjórnmálamenn vilja vera í meirihluta; þar gerast hlutirnir.

Sjálfstæðismenn í Grindavík fara varla í meirihluta á meðan þessi maður er oddviti listans. Umhugsunarvert fyrir þá!

Einelti er ljótt fyrirbæri og hefur verið skilgreint þannig: að um einelti sé að ræða þegar einstaklingur verður fyrir því að einhver/einhverjir ráðast að viðkomandi með síendurtekinni hegðun er brýtur á viðkomandi og niðurlægir.

Því miður er þetta fyrirbæri til í samfélaginu á vinnustöðum og í skólum
Ein erfiðasta lífreynsla sem einstaklingur geti lent í er að verða fyrir einelti og vitað er að fólk ber þess seint bætur að lenda í þannig hremmingum.

Börn verða fyrir þessu og líka fullorðnir. Stundum fer maður í að afsaka gerendur í svona málum á því að þroski og jafnvel erfið lífsreynsla sé valdandi því að viðkomandi notar einelti sem samskiptaform og á það við til að mynda þegar við sem störfum og erum í kringum börn ræðum þessi mál. Þá erum við að finna ástæður fyrir hegðun geranda.

Við eigum aldrei að samþykkja einelti í okkar samfélagi. Það vita þeir er starfa í uppeldisgeiranum hvað svona reynsla getur gert fólki. Erfið reynsla sem litar ævi manna. Það vitum við foreldrar sem eigum barn sem lent hefur í einelti að það er erfið reynsla ekki bara fyrir barnið heldur líka fyrir foreldranna.

Við sem störfum í stjórnmálum og gefum kost á okkur fyrir okkar samfélag verðum að vera undir það búinn að um okkur sé rætt og fólk hafi skoðanir á okkur og því sem við stöndum fyrir en við eigum aldrei að leggjast svo lágt í garð hvors annars að nota gífuryrði og ljótleika til að upphefja okkur sjálf.

Í góðri bók stendur að sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.

Ég skora á Grindvíkinga að hugleiða það sem hér er skrifað og vil treysta á skynsemi ykkar kæru bæjarbúar um að við eigum gott samfélag saman þar sem við höfum umbyrðarlyndi í garð hvors annars að leiðarljósi.

Petrína Baldursdóttir.