Breytingar á deiliskipulagsáćtlunum í Svartsengi

Breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Svartsengi
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Grindavíkurbær breytingar á deiliskipulagsáætlunum:

A. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bláa lónið. Í breytingunni felst að skilgreindar eru tvær borholur vestan til á svæðinu, lagnaleið fyrir affallsvökva frá Bláa lóninu að þeim og skipulagssvæðið er stækkað til vesturs og norðurs.
B. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir athafnasvæði og reit undir þjónustustofnanir. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur fyrir dælustöð, aðkomuvegur að dælustöð, lagnaleið fyrir þrýstilögn, skipulagssvæði stækkað til norðurs og nýtingarhlutfall aukið. 

Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, frá 7. október 2011 til og með 22. nóvember 2011. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega á bæjarskrifstofurnar til skipulags- og umhverfissviðs eða á netfangið ingvar@grindavik.is, eigi síðar en 22. nóvember 2011. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. 

Ingvar Þór Gunnlaugsson
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

Uppdráttur 1 (PDF)

Uppdráttur 2 (PDF)