Magma Energy og HS orka: Mjálmiđ hćrra íslenskir ráđamenn!

Undanfarna viku hafa menn geta fylgst með þeirri atburðarrás í íslenskum fjölmiðlum, mitt inn í allri Icesave umræðunni, að ráðherrar vinstri grænna hafa eitthvað verið að mjálma (fyrirgefið orðalagið) um eignarhald á íslenskri auðlind mætti ekki vera í höndum erlendra aðila og vísast þar til tilboðs Magma Energy, kanadíska fyrirtækisins sem keypti hlut í HS Orku nýlega, og vill nú kaupa meira m.a. hlut Orkuveitunnar í HS Orku.

Þetta er svo skrítið að verða áhorfandi eða öllu heldur hlustandi af þessu að manni geti nú bara orðið illt!

Staðreyndir í málinu.
Undanfarna mánuði hefur Grindavíkurbær verið í viðræðum við HS Orku um lönd í lögsögu Grindavíkur og hafa menn löngu áttað sig á því sjónarspil sem búið er að vera í gangi þar nú um langt skeið. Menn greinir á hver er handritshöfundur að leikritinu. Undirrituð telur víst hverjir það eru. Bæjaryfirvöld hafa ítrekað bent á t.a.m. í samtölum sínum við ráðamenn þjóðarinar og í skrifum opinberlega að þeir óttuðust að eignarhaldið á HS Orku færi á eitthvert flug. Hvað meina ég með því?

Miðað við það sem við Íslendingar gengum í gegnum með einkavæðingu bankanna ætlum við að láta hirða auðlindirnar okkar af okkur? Það var ljóst í huga þeirra sem stjórna bænum um þessar mundir að Magma Energy eða hvað sem hið erlenda fyrirtæki heitir eða mun heita ætlar sér ekki að eiga bara einhver 10% í fyrirtækinu heldur miklu meira. Menn eru ekki að fjárfesta í orkufyrirtæki upp á Íslandi og vera bara einhverjir minnihlutaeigendur! Hvað vitum við um fyrirtækið? Er það fært um að umgangast okkar auðlindir eins og lög gera ráð fyrir?

Menn hafa ekki einu sinni rætt við Grindvíkinga sem hafa þó allt skipulagsvald á sinni könnu í lögsögu Grindavíkur - skiptir það engu máli spyr ég?

Auðlindir eru okkar.
Auðlindirnar eru okkar Íslendinga og auðlindirnar sem hér um ræðir eru í okkar lögsögu, Grindvíkinga! HS Orka er fyrirtæki sem mörgum Grindvíkingum finnst vera fjöreggið okkar. Það byggir á framtaki manna í Grindavík sem sáu að snjórinn festi aldrei á ákveðnum stöðum í Svartsengislandi og höfðu þá framsýni að fara í ákveðnar aðgerðir sem vitum öll hvert leiddi okkur. Er okkur sama hverjir valsa hér um okkar auðlindir í lögsögu okkar? Erum við tilbúin að horfa upp á að auðlindir okkar séu settar í ævintýraleik eins og gerðist í leik íslenskra stjórnvalda þegar þeir afhentu bankana okkar til að einhverjir, mest langar mig til að nota orðið vitleysingar um þá en það er víst ljótt og hrokafullt svo ég nota orðið ævintýramenn, gætu leikið sér og sett heila hamingusama þjóð á kaldan klaka. Síðan er íslenskur almenningur nógu góður til að borga alla vitleysuna. Eigum við að horfa þegjandi upp á þessa vitleysu gerast einnig með okkar jarðhitauðlindir og orkufyrirtæki?

Kúlulán til 70. ára á 1,5 % vöxtum !
Orkuveitan ætlar sér að lána Magma 70% prósent af kaupverði hlutarins í HS Orku með veði í bréfunum sjálfum og lánið beri 1,5% vexti til næstu 7 ára. Magma stefnir einnig á að kaupa hlut Reykjanesbæjar í HS Orku.

Hafið þið velt þessu fyrir ykkur lesendur góðir - hvað er í gangi?

Bæjaryfirvöld fóru og ræddu við iðnaðarráðherra í júní s.l. þar sem líst var yfir áhyggjum Grindavíkurbæjar með eignarhluti í HS Orku og það sama gæti gerst þar og með bankana á sínum tíma. Iðnaðarráðherra var bara alls ekki sammála og ljóst er að henni er skítsama hverjir eiga íslenskar auðlindir. Reynt var marg ítrekað að ná í fjármálaráðherra til að ræða þessi mál en hann hefði engan tíma þá í svona ómerkilegt mál. Icesave og ná þeim þvingunarsamningum í gegnum þingið hlýtur að hafa verið stærra mál að hans mati. En nú mjálma þau í vinstri grænum og segjast vilja koma því til leiðar að íslenskir lífeyrissjóðir eignist frekar meirihluta og íslenskir lífeyrissjóðir kaupi ásamt orkufyrirtækjum.

Mjálmið hærra.
Endilega ráðamenn talið hærra, mjálmið hærra. Látið okkur finna að ykkur sé ekki sama hverjir koma hér og eignast auðlindir okkar.

Vonandi tekst að fá íslenska lífeyrissjóði og önnur orkufyrirtæki í það lið að vilja fjárfesta í orkuauðlindum okkar.

Góðs viti er, ef reynist rétt, að ráðmenn átti sig á því að þeir hafa mikið um málið að segja. Hvernig er með eignarhlut ríkisins í gegnum skilanefndir bankanna t.a.m. á Geysir Green Energy, hvað um það? Má ríkið ekkert hafa um það að segja? Eru kannski einhverjir útvaldir víkingar þar á ferð?

Er nema vona að maður spyrji - ein góð samviskuspurning til okkar allra; er okkur kannski alveg sama hverjir eiga svona rétt eins og iðnaðarráðherra Íslands um þessar mundir.

Petrína Baldursdóttir.