Grindvíkingur vikunnar - Pálmar Örn Guđmundsson
Grindvíkingur vikunnar - Pálmar Örn Guđmundsson

Grindvíkingur vikunnar er íþróttakennarinn og þjálfarinn Pálmar Örn Guðmundsson. Hann hefur þjálfað yngri flokkana hjá stúlkunum undanfarin ár með góðum árangri. Um helgina náði 6. flokkur þeim frábæra árangri að tryggja sér gull og silfur, B-liðið vann gull og A-liðið silfur. Pálmar Örn svaraði nokkrum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.

Nafn? Pálmar Örn Guðmundsson.
Fjölskylduhagir? Er í sambúð með Hólmfríði Ósk Samúelsdóttur.
Starf? Grunnskólakennari, þjálfari og trúbador.
Uppáhalds-
...maturinn? Hamborgarahryggur.
...drykkurinn? Pepsí.
...staðurinn? Grindavík.
...leikarinn? Morgan Freeman.
...bókin? Stóra Fuglabókin.
...íþróttamaðurinn? Usain Bolt. Ótrúlegt að geta hlaupið svona hratt.
...liðið? Grindavík J.
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Gítarinn, fartölvuna, punginn til að komast á netið, fótbolta og spjót til að veiða með.
Hvað er best við Grindavík? Íþróttalífið.
Hvers vegna gekk stelpunum svona vel á Hnátumótinu? Þær mæta vel á æfingar og leggja sig alltaf fram. Síðan eiga þær góða foreldra sem hvetja þær áfram á jákvæðan hátt.
Þú ert búinn að þjálfa yngstu stelpurnar í nokkur ár með góðum árangri og þér tekst að fá margar til að æfa. Hvernig ferðu að því? Ég hef lagt áherslu á að gera þetta skemmtilegt. Ég reyni að sýna öllum áhuga óháð getu og er duglegur að hrósa þegar þær gera eitthvað vel. En svo er ég náttúrulega svo hrikalega skemmtilegurJ.
Hvað er skemmtilegast við að þjálfa fótbolta? Það sem mér finnst skemmtilegast við þjálfunina er að sjá árangurinn af allri þeirri vinnu sem ég hef lagt í þetta en ég hef þjálfað þessar stelpur í þrjú og fjögur ár. Það er líka skemmtilegt að finna að fólk kunni að meta það sem maður er að gera.
Eitthvað að lokum? Grindvíkingar geta verið stoltir af því öfluga íþróttalífi sem fer fram hér í bæ. Það er merkilegt að rúmlega 2800 manna bæjarfélag eigi úrvalsdeildalið kvenna og karla bæði í körfubolta og knattspyrnu. Vonandi tekst okkur að halda áfram á þessari braut. Ég er stoltur Grindvíkingur. Áfram Grindavík.

A-liðið er á efri myndinni en B-liði á þeirri neðri.

Pálmar skrifaði einnig sjálfur um sína upplifun á því hvernig mótið gekk fyrir sig hjá 6. flokki um síðustu helgi:

Úrslitakeppnin í 6. flokki kvenna fór fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Tveir úrslitariðlar voru hjá A-liðum, hvor með fjórum liðum. Efstu liðin í hvorum riðli kepptu um fyrsta og annað sætið. Hjá B-liðum var aðeins einn riðill og því siguvegari það lið sem endaði í efsta sæti. Til að komast í úrslitakeppnina þurftu stelpurnar að vinna riðlana sína sem voru spilaðir fyrr í sumar. Þar unnu stelpurnar Val, ÍR og Víði.
Í úrslitakeppninni byrjaði B-liðið að spila við Breiðablik. Stelpurnar voru undir í hálfleik 0-1 en komu sterkar inn í seinni hálfleikinn og unnu að lokum sigur 3-1. Næst unnu þær ÍBV 2-0. B-liðið endaði þetta síðan með stæl og vann Haukana 4-1.

A-liðið byrjaði á því að keppa á móti Breiðabliksstelpum en þær eru eitt sterkasta liðið í þessum flokki. Þær sigruðu til dæmis Símamótið auðveldlega þar sem þær fengu einungis eitt mark á sig allt mótið. Grindavíkurstelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu Blikana 2 - 1. Næst var það Ægir og fór sá leikur 6 -1 fyrir Grindavík. Leikurinn við Hauka var síðan síðasti leikurinn í riðlinum og unnu Grindavíkurstelpurnar hann 3 - 1.

Í úrslitlaleiknum mættu A-liðsstelpurnar Víkingi. Því miður náði Grindavík sér aldrei á strik í leiknum og tapaði 5-1. Á ýmsu gekk í leiknum en Ísabel lenti í samstuði við eina Víkinsstúlkuna og fékk stærðarinnar glóðurauga. Inga Bjarney fékk síðan í sig spark á lokasekúndunum og lenti illa sem varð til þess að sprunga kom í ristarbein og er hún nú í gifsi. Þetta er glæslilegur árangur hjá stelpunum og ég er stoltur þjálfari 6. flokks kvenna.

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf ađstođarleikskólastjóra viđ leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseđlar fasteignagjalda fyrir áriđ 2012
fim. 9. feb. 2012    Góđar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
miđ. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
miđ. 8. feb. 2012    Mikiđ um ađ vera í körfuboltanum
miđ. 8. feb. 2012    Veiđarfćraţjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtćki
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Salthúsinu
miđ. 8. feb. 2012    Ţorrablót á Veitingastofunni Vör
ţri. 7. feb. 2012    Námskeiđ í skyndihjálp í sundlauginni
ţri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
ţri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
ţri. 7. feb. 2012    Viltu taka ţátt í menningarvikunni? Ertu međ ábendingar?
ţri. 7. feb. 2012    Verkalýđsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmćliskaffi á sunnudaginn
ţri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmađur 14. umferđar
ţri. 7. feb. 2012    Framhaldsađalfundi frestađ um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeiđ
mán. 6. feb. 2012    Opiđ hús hjá Ţórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeiđ í svćđanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóđinn - Spennandi námskeiđ í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega viđ Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafniđ gefur út upplýsingabćkling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnađur hjá Vísi