Ingibjörg Jónsdóttir var kvenfélagskona nokkur í Grindavík fyrir mörgum áratugum síðan. Hún var stofnandi Skógræktarfélags Grindavikur og var annt um að gróðursetja í Grindavík á árum áður. Ingibjörg þessi var formaður kvenfélagsins og á árinu 1939 þegar hún varð sextug stofnuðu kvenfélagskonur sjóð henni til heiðurs. Ingibjörg ákvað eftir umhugsun að verja sjóðnum í að koma upp skógrækt í Grindavík. Fékk hún land fyrir norðan Þorbjörn til að rækta upp og hafði hún m.a ráðfært sig við skógræktarstjóra ríkisins sem taldi landið vel til þess fallið að rækta upp skóg. Á árinu 1957 var svo gróðursett birki og var það áðurnefnd Ingibjörg er gróðursetti fyrstu plöntuna.

Ingibjörg nefndi skóginn sinn Selskóg og sagði sjálf að nafnið ætti rætur að rekja til gamalla seltófta er hefðu verið á skógræktarsvæðinu.
Margir Grindvíkingar kannast síðan við að hafa gróðursett plöntur í hlíðum Þorbjarnar í skóginum hennar Ingibjargar en á sjöunda og áttunda áratugnum a.m.k fóru grunnskólabörn ár hvert og gróðursettu.
Selskógurinn og útivistin.
Undirrituð hefur lengi haft áhuga á því að bæjaryfirvöld og fleiri áhugasamir taki sig saman og geri þessum Selskógi hærra undir höfði en verið hefur.
Draumurinn er að í lundinum yrði komið upp betri aðstöðu fyrir fjölskyldur til að koma í skóginn og eiga góðar stundir saman grilla á góðum dögum og börnin gætu leikið sér við skemmtilegar aðstæður. Sett væri upp aðstaða til að matast.
Aðgengið að skóginum yrði að bæta og helst af öllu að koma því til leiðar að frá Grindavík og upp í Selskóg væri malbikaður stígur sem nýtist fyrir fjölskyldur að hjóla þarna upp eftir eða línuskauta eða bara til að ganga og hlaupa á.
Við vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 var búið að eyrnarmerkja pening til þess að setja í malbikaðan stíg en niðurskurðarhnífurinn náði til hans. Við skulum sjá til hvort hægt sé að koma því til leiðar að setja eitthvað fjármagn í svona verkefni á árinu 2010.
Undirituð telur að hægt væri að skapa yndislegt útivistarsvæði og aðstöðu þarna fyrir Grindvískar fjölskyldur og fyrir þá sem vilja njóta.
Í sumar fékkst styrkur til að Skógræktarfélagið gæti farið og grisjað skóginn og snyrt í umhverfinu.
Selskógur er minnismerki um framsýna konu í Grindavík sem vann mikið og fórnfúst starf fyrir umhverfið sem hún lifði í.
Látum það verða okkar verk að koma því til leiðar að henni og því merka framtaki er hún vann verði gert hátt undir höfði með því að gera hlutverk Selskógarins en meira í daglegu lífi fjölskyldna í Grindavík a.m.k yfir sumartímann sem dægradvöl.
Sannfærð er sú sem þessar línur skrifar um að Frú Ingibjörg hlyti að verða ánægð með að Selskógurinn hennar fengi svo stórt hlutverk að verða útivistarparadís okkar og bæri þá nafnbót með réttu.
Er ekki komin tími til að huga að svona málum hér í Grindavíkinni góðu-fyrir okkur sem lifum í samfélaginu núna?
Það finnst mér!
Petrína Baldursdóttir.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)






