Festi og hvað svo?
Festi og hvað svo?

Þegar undirrituð var á tólfta ári flutti hún til Grindavíkur. Eitt af því fyrsta sem ég man eftir að hafi vakið athygli mína var hversu fallegt samkomuhús Grindvíkingar áttu. Þá var nýbúið að vígja Festi. Árin á eftir voru svo blómatími húsins þar sem böll voru haldin allar helgar og vinsælustu hljómsveitir landsins spiluðu. Allt frá þessum tíma hefur þetta hús gegnt mikilvægu hlutverki fyrir íbúa Grindavíkur. Þess vegna er ekki skrítið að flestir hafi sínar skoðanir á því hvað á að verða um Festi í því ásigkomulagi sem það er í í dag. Óþarfi er að rifja upp það upp. Hugum að framtíð húsins!

Húsið hreinsað að innan

Bæjaryfirvöld ákváðu nú í vetur að setja á stofn þriggja manna nefnd sem myndi koma með hugmyndir að endurbyggingu og framtíðarhlutverki Festis. Nefndin hefur ekki enn skilað af sér og því ekki hægt að vitna í hugmyndir hennar um framtíð hússins. Grindavíkurbær sótti til Vinnumálastofnunnar eftir úthlutun fjármuna til þess að geta hafið átak til að rífa innan úr húsinu. Það var gert eftir að Verksýn ehf, sem vann ástandsskýrslu fyrir Grindavíkurbæ um Festi, hafði skilað af sér mati á því hvað væri ónýtt og þyrfti að fjarlægjast og hvað mætti nota í húsinu ef húsið yrði nýtt til endurbyggingar. Ýmsar skoðanir hafa verið uppi um framtíðarhlutverk húsins; allt frá því að ryðja því í burtu og byggja nýtt eða endurbyggja húsið með menntaskóla - bókasafni - tónlistarskóla ásamt því að salur eða einhvers konar miðrými yrði til nota fyrir Grindavíkinga í húsinu til að halda samkomur.

Hópur manna hefur undanfarið verið inni í Festi að rífa innan úr húsinu eins sjá má af myndum og lesa um á heimasíðu bæjarins nýverið. Ljóst er að húsið bíður þess að ákvörðun verði um framhaldið.

Framtíð Festis

Skoðun mín er sú að bæjaryfirvöld eigi að hugsa Festi sem menningarhús okkar inn í framtíðina og það verði fyrst og fremst hlutverk hússins.Við eigum að huga að verndun og nýtingu húsins á þeim grunni sem húsið hefur staðið á í tæp fjörtíu ár. Í húsinu er verðmæti sem er umgjörð um arkitektúrinn frá þeim tíma sem það var byggt á. Má þar nefna salinn og loftið sem slíkan og listaverkin fram í andyrinu. Byggjum utan um þetta gerum Festi fyrst og fremst að okkar menningarhúsi. Í húsinu munum við vera áfram með salinn og jafnvel stækka hann, eldhús og öll hreinlætisaðstaða tekinn í gegn. Endurnýjum allar lagnir og loftræstikerfi miðað við nútíma kröfur og það sem verður að vera til staðar. Tónlistarskólinn á að mínu mati að fá stað í endurgerð þessa hús og verða það afl í menningarlífi okkar að hann sé staðsettur í menningarhúsi okkar, Festi.

Lykilinn að framtaki okkar Grindvíkinga verður að byggja nýtt hús með nýtt hlutverk en með gamla sál sem byggir á því stórmerkilega átaki fyrrum sporgöngumanna Grindavíkur sem reistu Festi.

Undirrituð er sannfærð og telur að með haustinu getum við sest yfir þessa ákvöðrun og stefnt að því að vera komin með nýtt hús utan um Festi á 40 ára afmæli hússins. Hvernig væri það?
Getum við Grindvíkingar ekki verið sammála um framtíð Festis á eitthvern svona hátt. Það er eitt af forgangsverkefnum okkar á næstu árum ásamt uppbyggingu íþróttasvæðis.

Petrína Baldursdóttir