Grindvíkingur vikunnar - Margrét Rut Reynisdóttir
Grindvíkingur vikunnar - Margrét Rut Reynisdóttir

Grindvíkingur vikunnar er Margrét Rut Reynisdóttir sem var eini Grindvíkingurinn sem tók þátt í unglingalandsmóti UMFÍ á dögunum. Margrét æfir sund af kappi með sunddeild UMFG. Hún gerði sér lítið fyrir og vann fern gull, eitt silfur og eitt  brons í sundkeppni landsmótsins. Hún er aðeins 12 ára og með þeim efnilegustu á landinu í sínum aldursflokki. Hún æfir einnig fótbolta af kappi með 5. flokki.

Nafn? Margrét Rut Reynisdóttir.
Fjölskylduhagir? Bý með foreldrum mínum Ásrúnu Kristinsdóttur og Reyni Þráinssyni, fjögurra ára systur minni Örnu Rún og heimiliskettinum Dimmu.
Skóli? Er að fara í 7. bekk í Grunnskólanum í Grindavík.
Uppáhalds-
...maturinn?
Fiskrétturinn hennar mömmu með hrísgrjónum og salati.
...drykkurinn? Kristal sport og vatn.
...staðurinn? Auðvitað Grindavík og sumarhúsið hans afa Didda í Svíþjóð.
...leikarinn? Grindvíkingurinn Víðir Guðmundsson.
...bókin? Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren.
...íþróttamaðurinn? Steven Gerrard, Michael Phelps svo er ég mjög ánægð með frænda minn hann Óla Baldur Bjarnason.
...liðið? Grindavík og Liverpool.
Ef þú værir ein á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Ég tæki með mér Fast skin sundföt, sundgleraugu, froskalappir, Grindavíkur sundhettuna og vatnsheldan MP3 svo það verði stemning hjá mér þegar ég syndi heim.
Hvað er best við Grindavík? Grindavík er ótúlega góður staður, hér er gott að stunda íþróttir en það er ótrúlega mikill munur eftir að nýja höllin kom. Núna vantar bara innisundlaug svo maður geti náð betri árangri í sundinu (nú verður Maggi sundþjálfari ánægður með mig).
Hvernig gekk þér á unglingalandsmótinu? Mér gekk mjög vel, vann 4 gull, eitt silfur og eitt brons. Ég bætti mig aðeins í 50m bringu og 50m flugi og hafði bara mjög gaman af þessu öllu saman.
Þú tókst líka þátt í stóra landsmótinu á Akureyri, hvort landsmótið fannst þér skemmtilegra og af hverju? Mér fannst skemmtilegra á Akureyri út af því að þar voru frábæru krakkarnir í sunddeildinni með mér. Það er ekki bara gaman að vinna til verðlauna, félagsskapurinn skiptir líka miklu máli. Á setningarhátíðinni á Sauðarkróki heyrði ég krakka frá Keflavík gera grín af því að ég væri eini keppandinn frá Grindavík, það var því bara ljúft þegar ég náði að vinna stelpur frá því félagi í sundlauginni.
Eitthvað að lokum? Krakkar, förum á Unglingalandsmótið á Grundarfirði á næsta ári, ég ætla ekki að vera aftur ein frá Grindavík á setningarhátíðinni.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut