Fyrirtćki vikunnar: Skálakaffi viđ Ísólfsskála - krúttlegasta kaffistofa landsins
Fyrirtćki vikunnar: Skálakaffi viđ Ísólfsskála - krúttlegasta kaffistofa landsins

Flestir Grindvíkingar vita um Ísólfsskála sem er um 10 km austur af Grindavík. En þar rétt hjá, við Suðurstrandarveg, er Skálakaffi sem verður að teljast einhver krúttlegasta kaffistofa landsins - og er fyrirtæki vikunnar. Þar ræður Stefanía H. Haraldsdóttir ríkjum en hún býr í Sandgerði og þetta er þriðja sumarið sem hún starfrækir Skálakaffi. Fyrstu tvö sumrin var Skálakaffi eingöngu opið um helgar en í sumar hefur verið opið flesta daga.

Heimasíðan heimsótti Stefaníu um helgina. Hún keyrir ekki á hverjum degi frá Sandgerði því hún býr sjálf í sumarbústað skammt frá Skálakaffi. Stefaníu er ýmislegt til lista lagt því hún er jafnframt listakona og í Skálakaffi er að finna úrval listmuna til sölu.

,,Þetta er svona reitingur, það fer eftir umferðinni á Suðurstrandarvegi," svarar Stefanía aðspurð um hversu mikið er að gera hjá henni. Til þess að laða ferðamenn að er hún með nokkuð af dýrum við Skálakaffi sem börn sækja mikið í, þar á meðal hvolpa, kanínur og endur.
Skálakaffi sést ekki vel frá Suðurstrandarveginum eftir að veginum var breytt töluvert þegar hann var malbikaður fyrir nokkrum misserum. Stefanía hefur hins vegar reynt að vekja athygli á Skálakaffi með skiltum við veginn.

,,Ég sel aðallega kaffi og vöfflur og reyndar ýmislegt annað, svo ég er ég listmuni mína til sölu. Þetta er bara gaman," segir Stefanía. Skálakaffi er ekki stórt en þar er skemmtilegt að setjast niður í fallegu umhverfi og fá sér kaffi og vöfflur.

Grindvíkingar sem aka um Suðurstrandarveginn eru hvattir til að koma þar við. Stefanía segist eiga vona á aukinni umferð þegar búið verður að malbika Suðurstrandarveginn alla leið í Ölfus og verður Skálakaffi eina kaffistofan við veginn.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut