Símamótiđ í knattspyrnu - Hugleiđingar ađ loknu móti
Símamótiđ í knattspyrnu - Hugleiđingar ađ loknu móti

Fyrir um það bil tuttugu og fimm árum (25) minnist undirrituð þess að hafa setið í húsi í samkvæmi í Grindavík og lent þar í miklum rökræðum við karlpeninginn um hvort það ætti rétt á sér að stelpur spiluðu og kepptu í fótbolta. Ég man þetta eins og gerst hefði í gær! Það voru ótrúleg viðhorfin um að konur gætu ekki keppt í boltaíþróttum.

Þetta var dæmigerð hugsun þess tíma sem ber stundum á gagnvart kvenkyni enn í dag því miður. Ég er samt ekkert viss um að þeir sem ég man efir úr mínum rökræðum vilji kannast við að hafa haft þessi viðhorf. Stundum er gott að líta tilbaka og þá sér maður hvert breytt viðhorf og tíminn hefur leitt mann.
En hvað um það- einu sinni var.

Símamótið 2009.

Undirrituð fór með tveimur yngri dætrum sínum á mótið í Kópavogi um helgina og var það mjög gaman.
Frábært veður sem ekki spillti nú fyrir því að vera úti og horfa á góðan bolta.

Það var auðvelt þegar horft var yfir alla vellina sem keppt var á og horft á stelpur á aldrinum frá 5-6 ára og fram að unglingsaldri sparka í tuðruna með gleði bros á vör að hverfa aðeins tilbaka í huganum og rifja upp hvernig maður var klemmdur úti í horni í sínum rökræðum um tilverurétt kvennaboltans.

Það er ógleymanlegt að hlusta á allar þessar litlu kerlingar ( stelpur) syngja hástöfum á milli leikja og meðan þeir eru að labba á milli valla til að keppa Grindavík eru bestar eða Grindavíkurstelpur koma hér- þær eru bestar hér á landi og eu alveg ósigrandi !

Þjálfarar-foreldrar.

Það sem er svo bónus við þetta allt saman er að sjá alla foreldrana, ömmur og afa sem mæta til að hvetja stelpurnar og upplifa gleði og sorg með þeim. Maður verður svo stoltur af tilheyra samfélagi sem er tilbúið að taka þátt í þessu ævintýri með börnin sín. Aðstandendur standa á hliðarlínunni og hvetja sitt lið fram í rauðan dauðann. Stelpurnar eru fléttaðar, málaðar og í þeirra huga alveg ósigrandi.
Þjálfararnir hafa stærsta hlutverkið. Hvernig þeir tala við stelpurnar. Hvernig þeir innleiða þá hugsun hvað skiptir máli. Skiptir máli hvernig liðið leggur sig fram?

Skiptir máli hvernig þær koma fram við hver aðra innan vallar sem utan ? Hver er svo stærsti sigurinn /sigurvegarinn þegar upp er staðið?

Er ekki gott að vita hvernig er að tapa leik og þá veit maður vonandi hversu gott það er þegar maður er í sigurliðinu.

Undirrituð ætlar að hrósa knattspyrnudeild UMFG fyrir alla umgjörðina. Val á þjálfurum hvernig þeir leggja sinn metnað í að bjóða ungviðinu upp á afbragðs þjálfara eins og þau Helenu Bjarndísi sem er með 5. flokk kvenna og Pálmar Guðmundsson sem er með 6. og 7. flokk kvenna.
Fólk sem veit hvað það eru að gera og hvað það eru með í höndunum!

Að lokum takk fyrir baráttumenn kvennaboltans í gegnum árin. Það þarf baráttufólk á hverjum tíma hér í samfélaginu til að breyta ríkjandi viðhorfum.

Petrína Baldursdóttir