Það þarf enginn sem fylgist með þjóðmálum að velkjast í vafa um að staða Íslendinga er afar erfið um þessar mundir. Ekki einungis vegna arfavitlausra ákvarðantöku stjórnmálamanna varðandi t.a.m. einkavæðingu bankanna á sínum tíma. Heldur fylgdi í kjölfarið lítil eftirfylgni með regluverkinu og ekki síður að menn fengu algjörlega lausan tauminn varðandi fjármál, fjárfestingar og fleira. Margir telja að kolkrabbinn hafi aldrei verið sterkari en á síðustu árum með allskonar krosstengslum. Það hefur oft verið rætt manna á meðal að eitt það erfiðasta við að stjórna hvort sem um er að ræða í sveitarstjórnum eða á öðrum stigum sé fámenni okkar og kunningjaþjóðfélag.
Hagsmunir eiga mjög auðvelt með að flækjast saman. Stjórnmálamenn og aðrir sem koma að ákvarðantöku hafa þá það val að geta vikið sæti við umfjöllun og ákvarðantöku máls og þannig sagt sig frá tengslum við málið á ákvörðunarstigi.
Járngerðarstaða-Hópstorfu landið.
Nýlega rakti undirrituð forsögu landamáls okkar Grindvíkinga.
Aðalpunkturinn í því var meðal annars að fyrrverandi formaður bæjarráðs og oddviti sjálfstæðismanna hefði á ölllum stigum landamálsins átt að segja sig frá ákvarðanatöku um málið. Hann svarar þeirri ábendingu minni með útúrsnúningi í mbl laugardaginn 11. júlí.
Mat mitt er - hvernig oddviti sjálfstæðismanna snýr út úr málefnalegri umræðu með persónulegum ásökunum um vanhæfni þeirrar sem þetta skrifar dæma sig sjálfar. Í stað þess að ræða um efni og innhald þess sem bent er á snýr hann því upp á undirritaða að ekki hafi verið hægt að mynda félag um Járngerði-Hópstorfu vegna athugasemda um hvernig félag væri stofnað. Enn er því ósvarað af hverju gekk hann ekki frá myndun félagsins? Var það vegna venslatengsla við Bláa lónið? Spyr sá sem ekki veit.
Eitt er víst að undirrituð var í minnihluta á þessum tíma og formaður bæjarráðs var vanur að taka ákvarðanir þó að þær samræmdust ekki skoðunum undirritaðrar. Þannig að ekki er hægt að segja að þær skoðanir hefðu átt að koma í veg fyrir myndun landeigendafélagsins. Ábyrgur formaðurinn átti að taka tillit til athugaemda, víkja sæti. Sýna ábyrgð gagnvart bæjarfélaginu þá hefði hann komið því til leiðar að stofnað væri landeigandafélag og komið í veg fyrir að HS Orka gæti samið við Bláa lónið án þess að menn hefðu hugmynd um hvað væri á seyði og getað komið inn í þann samning sem landeigendur. Ef formaðurinn og hans félagar hefðu gengið frá félaginu eins og undirrituð vildi hefðu hagsmunir bæjarfélagsins verið tryggir. Það er hlutverk okkar bæjarstjórnarfulltúa - tryggja hagsmuni bæjarfélagsins.
En það hentaði ekki formanni bæjarráðs á þeim tíma !
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Það að forstjóri HS Orku skrifaði blaðagrein sem var full af hroka um að undirrituð vissi ekkert um hvað væri verið að ræða finnst oddvita sjálfstæðismanna vera tilefni til þess að undirrituð segi af sér embætti. Spurt er hvers vegna? Er forstjóri HS Orku einhver guð almáttugur eða er hann ekki bara venjulegur maður? Hefur hann eitthvað réttara fyrir sér af því að hann er forstjóri HS Orku? Nú skal tekið fram að viðkomandi er örugglega ágætis maður en ég er bara ekki sammála forstjóranum um hvar hagsmunir Grindavíkur liggja í þessu máli. Í skrifum oddvita sjálfstæðismanna má lesa á milli lína að undirrituð hafi ráðist inn í orkugeirann, sjávarútveginn og eyðilagt samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum. Hvernig á maður að svara svona skrifum? Með því að ráðast til atlögu við fluggeirann. Kannski oddvitinn geti gefi góð ráð varðandi þann geira! Var hann ekki í flugrekstri um tíma?
Hvernig hann nafngreinir ávallt þegar hann svarar fyrir sig er eftirtektarvert.
Dæma þessi skrif sig ekki sjálf?
Hagsmunir Grindavíkur.
Er okkur kjörnum fulltrúum bæjarins ekki treyst fyrir hagsmunum bæjarfélagsins? Meirihluti bæjarstjórnar hefur verið að vinna að hagsmunum bæjarfélags varðandi þessi landamál og málefni þeirra auðlinda sem þar eru. Bæjarfulltrúar hafa miklar skyldur um trúnað við sitt embætti og því er tekið alvarlega.
Það er þyngra en tárum tekur að oddviti sjálfstæðismanna hafi ekki þann karakter að vinna með meirihlutanum að svo miklum hagsmunum okkar bæjarfélags. Hann velur frekar að verða meðreiðarsveinn annarra en þeirra sem eru að sinna hagsmunum Grindavíkur. Athyglisvert fyrir Grindvíkinga.
Petrína Baldursdóttir
formaður bæjarráðs.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
