Fyrirtćki vikunnar - Uppgangur hjá Tćkniráđi
Fyrirtćki vikunnar - Uppgangur hjá Tćkniráđi

Fyrirtæki vikunnar er Tækniráð ehf. sem hefur aðsetur að Hafnargötu 4. Fyrirtækið tók til starfa 15. maí á síðasta ári en eigendur þess eru hjónin Hrafn Sigvaldason og Margrét R. Arnardóttir. Fyrirtækið hefur farið vel af stað og þau hjón bera sig vel.

„Við hjónin höfðum áhuga á því að hefja verslunarrekstur í Grindavík og okkur fannst vera tilvalinn tími í að gera það á þessum tíma punkti. Tækniráð er alhliða tækniverslun með farsíma, ljósaperur, sjónvörp og tölvur. Einnig sér Tækniráð líka um að viðhalda og þjónusta netkerfi fyrirtækja hér í Grindavík ásamt því sem það tekur að sér alla almenna tölvuvinnu fyrir einstaklinga í bænum," segir Hrafn sem er menntaður kerfisfræðingur.

Tækniráð hefur komið sér vel fyrir í Hafnargötu 4 en verslunin er skemmtilega upp sett. Að sögn Hrafns hafa viðskiptin blómstrað og gengið vel fyrir sig. Tækniráð er samstarfsaðili Símans hf og þjónustar viðskiptavini hans í Grindavík og hefur tvo menn í vinnu.

„Já, Grindavík er nægjanlega stór markaður," segir Hrafn aðspurður en bendir á að þar skipti auðvitað höfuðmáli að þau fyrirtæki og stofnanir í bænum leiti í einhverjum mæli eftir því að kaupa þjónustuna af heimamönnum.

„Það er ávallt rjúkandi kaffi hjá okkur og um að gera að líta við og skoða hvað við höfum upp á að bjóða," sagði Hrafn að endingu sem hefur reyndar ýmis fleiri járn í eldinum þegar kemur að hönnun á tölvukerfum.

Heimasíða Tækniráðs er www.tir.is

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut