Fyrirtæki vikunnar - Hafnot þurrkar þara
Fyrirtæki vikunnar - Hafnot þurrkar þara

Fyrirtæki vikunnar er glænýtt og heitir Hafnot og er nýjasta sprotafyrirtækið í Grindavík. Það sérhæfir sig í þörungaveiðum og þurrkun. Eigandi þess og annar starfsmaður af tveimur er Grettir Hreinsson.

Að sögn Grettis gekk hann með þessa hugmynd í maganum í 15 ár áður en hann lét loks af því verða að hella sér út í þörungaþurrkun en hann skellti sér á ráðstefnu í Japan fyrir tveimur árum og ýtti það við honum.

,,Við þurrkum þörunginn í sérhönnuðum klefa og hann er svo aðallega notaður í matvæli.Tvær þekktustu þarategundirnar koma frá Japan en það eru ætiþarar sem eru notaðir í súpur, salöt, baunarétti og fleira. Íslenski þarinn er sambærilegur en við veiðum aðallega marínkjarna og hrossaþara en þessar tvær tegundir hafa ekki verið teknar til manneldis á Íslandi svo heitið getur. Hann var reyndar borðaður í harðindum áður fyrr en hér hefur marinkjarni ásamt söl aðallega verið hirt," segir Grettir.

Veiðimennskan reynir á þolrifin og úthaldið en veitt er við ströndina við Grindavík.

,,Við erum tveir um borð og höfum einn minni gúmmíbát með okkur til þess veiða þarann í fjöruborðinu. Við þurfum að sæta lagi en vinnuaðstæður geta verið erfiðar. Veiðitíminn er frá í maí og fram á haustið, jafnvel fram í nóvember en eingöngu er farið út í góðu veðri. Þarinn þolir ekki mikla geymslu og því þurrkum við jafn óðum til að halda í gæðin," segir Grettir.

Þari er meinhollur að mati Grettis. Hann bendir á að hjarta- og æðakvillar séu ekki eins algengir í Japan og á Vesturlöndum. Þarinn sé góður fyrir fólk með skjaldkirtilsvandamál og hafi hamlandi áhrif á krabbamein. Þarinn er næringarríkur af steinefnum og allra meina bót.

Grettir reiknar með að fara að selja framleiðsluna í haust og þá kemur í ljós hvort þessi veiðiskapur borgar sig.

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíð starfsmanna Grindavíkurbæjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samið um almenningssamgöngur á Suðurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mætir Skagafirði í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsaðalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock með 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góðri vetrarvertíð
fim. 2. feb. 2012    Viðhaldsstjóri og vaktmaður óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiðslu æfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteå vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsræktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sækir ÍR heim
mið. 1. feb. 2012    Kynningarátak bæjarins fyrir sjómenn vekur athygli
mið. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
mið. 1. feb. 2012    Lokadagur til að sækja um í Slökkviliðinu
mið. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
mið. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksæfingar hjá U16
mið. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
mið. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut