Grindvíkingur vikunnar - Birkir Rafn í verknámi hjá Grindavíkurbć
Grindvíkingur vikunnar - Birkir Rafn í verknámi hjá Grindavíkurbć

Grindvíkingur vikunnar er Birkir Rafn Jónsson. Hann hefur verið búsettur í Danmörku undanfarin þrjú ár en hefur verið í verknámi hjá Tæknideild Grindavíkurbæjar undanfarnar vikur. Verknámið er hluti af byggingafræðinámi en Birkir verður alls 10 vikur hjá Grindavíkurbæ.

Birkir er sonur Jóns Guðmundssonar og Margrétar Guðmundsdóttur. Hann er í námi við VIA háskólann á Jótlandi í Danmörku og útskrifast sem byggingafræðingur (Constructing Architect ) í janúar á næsta ári. Hann er uppalinn í Grindavík og á fjölskyldu hér og dóttur.

„Í verknáminu hef ég kynnt mér starfsemi Tæknideildar Grindavíkurbæjar, ég fylgist með hvernig þetta virkar og tek að mér verkefni. Þetta hefur verið skemmtilegt og fróðlegt. Starfsemin hefur komið mér á óvart því hér eru meiri umsvif en ég átti von á. Öll vinna hefur aukist í kringum hlutina, sérstaklega pappírsvinnan. En mér lýst vel á þetta og gaman að kynnast starfsemi bæjarins," segir Birkir.
Stefnan var að flytja aftur til Íslands að námi loknu. Hins vegar eru atvinnuhorfur slæmar og Birkir á von á því að vera lengur í Danmörku vegna slæms efnahagsástands á Íslandi, stefnan er að bæta við sig í námi.

„Það er virkilega fínt að vera í Danmörku, sérstklega fyrir barnafólk. Ég held að það sé hollt að prófa að búa í öðru landi ef fólk hefur tækifæri til þess. Það gefur nýja sýn á lífið," segir Birkir.
VIA háskólinn á Jótlandi býður upp á fjölbreytt tækninám, tölvunám og ýmislegt fleira. Birkir mælir eindregið með skólanum en hægt er að fræðast um hann á http://www.viauc.dk/

Nýlegar fréttir

fös. 3. feb. 2012    Grindavík í undanúrslit Útsvars
fös. 3. feb. 2012    Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeiđ
fös. 3. feb. 2012    Fjölskyldudagur á Króki
fös. 3. feb. 2012    Agnar er dásamlegur leikari
fös. 3. feb. 2012    Árshátíđ starfsmanna Grindavíkurbćjar 17. mars
fös. 3. feb. 2012    Samiđ um almenningssamgöngur á Suđurnesjum
fös. 3. feb. 2012    Grindavík mćtir Skagafirđi í kvöld
fös. 3. feb. 2012    Framhaldsađalfundur knattspyrnudeildar UMFG
fös. 3. feb. 2012    Bullock međ 51 stig!
fim. 2. feb. 2012    Kerfisstjóri
fim. 2. feb. 2012    Menn halda fast í plássin
fim. 2. feb. 2012    Júlíus á von á góđri vetrarvertíđ
fim. 2. feb. 2012    Viđhaldsstjóri og vaktmađur óskast
fim. 2. feb. 2012    Breytt fyrirkomulag á greiđslu ćfingagjalda UMFG 2012
fim. 2. feb. 2012    Hlutabréf Grindavíkurbćjar í HS veitum í söluferli
fim. 2. feb. 2012    Piteĺ vill aukin samskipti
fim. 2. feb. 2012    Líkamsrćktarstyrkur til UMFG
fim. 2. feb. 2012    Grindavík sćkir ÍR heim
miđ. 1. feb. 2012    Kynningarátak bćjarins fyrir sjómenn vekur athygli
miđ. 1. feb. 2012    Skreyttur skrauti Bakkusar
miđ. 1. feb. 2012    Lokadagur til ađ sćkja um í Slökkviliđinu
miđ. 1. feb. 2012    Rósalind í Kastljósi
miđ. 1. feb. 2012    Tveir valdir á úrtaksćfingar hjá U16
miđ. 1. feb. 2012    Pabbar og afar fjölmenntu á Laut
miđ. 1. feb. 2012    Listaverk á Laut