Grindvíkingur vikunnar er Jovana Lilja Stefánsdóttir sem er ein af okkar bestu körfuboltakonum. Hún verður kynnir á 17. júní hátíðahöldunum sem að þessu sinni fara fram við grunnskólann en Jovana Lilja hefur áður verið í þessu hlutverki. Dagskrá hátíðahaldanna má nálgast hér.
Jovana svaraði nokkrum laufléttum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar:
Nafn: Jovana Lilja Stefánsdóttir.
Fjölskylduhagir? Í sambandi.
Starf? Í sumar starfa ég í Landsbankanum en í haust fer ég að vinna á Leikskólanum Kór.
Uppáhalds-
...maturinn? Erfið spurning, finnst margt voðalega gott.
...drykkurinn? Sódavatn.
...staðurinn? Þar sem er sól, enginn vindur og útsýnið flott.
...leikarinn? Guðjón Davíð Karlsson.
...bókin? Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness.
...íþróttamaðurinn? Kobe Bryant - svo finnst mér Ólafur Stefánsson magnaður.
...liðið? Grindavík og Manchester United.
Ef þú værir ein á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Mér líður bara illa við að hugsa úti þetta en örugglega eitthvað að borða, drekka, síma, tölvu og eitthvað sem gæti bjargað mér sem fyrst frá eyjunni.
Hvað er best við Grindavík? Það er svo margt en það fyrsta sem mér dettur í hug er öflugt íþróttastarf.
Hvernig er að vera kynnir á 17. júní? Bara voðalega skemmtilegt.
Eitthvað að lokum? Áfram Grindavík!
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
