Fundur í Fræðslu- og uppeldisnefnd var haldinn hinn 18. maí 2009 á bæjarskrifstofu kl. 17:00.
Mætt: Jón Fannar, Eva, V. Áslaug, Svanþór (varam. fyrir Guðmund) frá nefndinni. Þuríður f.h. grunnskólakennara, Arna f.h. foreldra, Páll Leó fulltrúi skólastjórnar. Nökkvi Már situr fundinn og ritar fundargerð. Eyjólfur Bragason mætir á fundinn skv. boðun.
1. Menntaskóli Grindavíkur
Eyjólfur Bragason kynnir erindið. Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með fyrirhuguð áform um stofnsetningu menntaskóla í Grindavík.
2. Skóladagatal Grunnskóla Grindavíkur
Lagt fram.
3. Ráðningar starfsmanna í Grunnskóla Grindavíkur
Páll gerir nefndinni grein fyrir starfsmannahaldi næsta skólaárs.
4. Samræmd próf - Lög og reglugerðir
Páll Leó kynnir reglugerð nr. 435/2009 um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla.
5. Drög að skólastefnu Grindavíkur
Jón Fannar kynnir og reifar drög að nýrri skólastefnu Grindavíkur.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Jón Fannar Guðmundsson
Svanþór Eyþórsson
Valgerður Áslaug Kjartansdóttir
Eva Björg Sigurðardóttir
Páll Leó Jónsson
Arna Björnsdóttir
Nökkvi Már Jónsson