1204. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn á skrifstofu bæjarstjóra, miðvikudaginn 3. júní 2009 og hófst hann kl. 07:30.
Fundinn sátu:
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Petrína Baldursdóttir, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, Björn Haraldsson,
Fundargerð ritaði: Jóna Kristín Þorvaldsdóttir , bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 0905021 - Skólahreysti 2009-umsókn um styrk.
Erindinu hafnað
2. 0905077 - 213.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Fundargerðin lögð fram
3. 0905076 - Frumvarp til vegalaga.
Bæjarráð tekur undir þá samþykkt Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna frumvarps til vegalaga að fjármögnun af hálfu ríkisins til sveitarfélaga sé trygg vegna aukinna skyldna sveitarfélaganna og ábyrgðar á viðhaldi vega.
4. 0905074 - Málefni Kölku.
Bréfið lagt fram
5. 0905073 - Atvinnuátak 2009 - Niðurrif Festis
Ákveðið hefur verið að sækja um styrk í átaksverkefni hjá Vinnumálastofnun.
Eins og orðrétt segir í greinargerð með styrkumsókninni þá er "um að ræða niðurrif á innanstokksmunum, lausum veggjum, milliveggjum og loftum í félagsheimilinu Festi í Grindavík."
6. 0809053 - Tjaldsvæði - gjaldskrá sumarsins 2009
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi gjaldskrá fyrir tjaldsvæðið í sumar:
Verð fyrir fullorðna kr. 750, ókeypis fyrir 14 ára og yngri, fjórða hver nótt ókeypis. Kr. 500 fyrir félaga í félagi húsbílaeigenda. Útilegukortið gildir á tjaldsvæðinu. Hópar/ættarmót greiða eftir samkomulagi. Rafmagn kr. 500, seyrulosun ókeypis.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08.14.