Fyrirtæki vikunnar: Verkfræðistofan Verkmáttur
Fyrirtæki vikunnar: Verkfræðistofan Verkmáttur

Fyrirtæki vikunnar er verkfræðistofan Verkmáttur sem Pétur Bragason rekur en hann var áður yfirmaður Tæknideildar Grindavíkurbæjar. Starfsmenn Verkmáttar taka að sér verkefnastjórnun og ráðgjöf við verkefnastjórn og er það megin starfsemi fyrirtækisins. En hvers vegna fór Pétur út í að stofna Verkmátt?

„Það var ekki spurning hvort heldur hvenær ég skyldi stofna mitt eigið fyrirtæki og ég tók þessa ákvörðun vorið 2007 og sagði þá upp í kjölfarið vinnunni sem ég var í hjá Grindavíkurbæ. Verkfræðistofa varð fyrir valinu þar sem að ég hef alltaf haft gaman af byggingarframkvæmdum. Það má segja að það sé í blóðinu að ég yrði alltaf sjálfstæður atvinnurekandi og er alinn upp við þetta. Pabbi minn er sjálfstæður atvinnurekandi, báðir afar mínir og frændur og þeir starfa annað hvort sem byggingarverktakar eða voru í útgerð. Þeir eru mínar fyrirmyndir."

- Þú býrð í Grindavík en hvers vegna að hafa skrifstofuna í Reykjanesbæ?
„Í upphafi var ég með vinnuaðstöðu fyrirtækisins í Grindavík en ég tók þá ákvörðun að færa alfarið aðstöðuna í Reykjanesbæ í upphafi þessa árs, eftir þó nokkra umhugsun. Í Reykjanesbæ gat flutt í frábært skrifstofuhúsnæði við sjóinn sem ég hef lengi haft augastað á. Þetta víkkar einnig út markaðssvæði fyrirtækisins ásamt því að nú er ég einnig staðsettur mitt á milli minna stærstu viðskiptavina sem eru í Grindavík, á Vallarheiði og í Garðinum. Ég lít þó á fyrirtækið mitt sem grindvískt þar sem að ég er eigandi þess og fyrirtækið er með lögheimili í Grindavík."

- Hvaða verkefni vinnið þið að? Hvaða verkefni eruð þið með í Grindavík?
„Við vinnum við allt sem snýr að verkefnisstjórnun byggingarframkvæmda, s.s. tilboðs- og áætlanagerð, reikningsgerð, gerð útboðsgagna ásamt framkvæmdaeftirliti og hönnun húsbygginga. Við bættum svo nýverið við þjónustuna og fengum flinkan grafískan hönnuð og MBA mann til liðs við okkur og hann vinnur nú að markaðsmálum, stefnumótun og fleiri verkefnum í rekstrarráðgjöf fyrir hina ýmsu aðila. Hann var t.d. að vinna fyrir Samtök fjármálafyrirtækja í seinustu viku og aðstoðaði við markaðsetninguna á Íslandskistum. Helsta verkefnið mitt í Grindavík er Hópsskóli en þar er ég Grindinni til halds og trausts svo að verkið gangi upp eins og við Magnús lögðum af stað með í upphafi."

- Hvernig er verkefnastaðan miðað við árferðið í dag?
„Verkefnastaðan okkar er góð og við vinnum alltaf hörðum höndum að því að efla verkefnastöðuna til þess að geta skapað fleiri eftirsóknarverð störf fyrir gott starfsfólk. Grindvíkingar eru velkomnir í heimsókn til okkar og það er alltaf heitt á könnunni og gott vatn í krananum," sagði Pétur Bragason að lokum. 

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi