Bergur Ingólfsson leikari með meiru heldur góðum tengslum við sínar æskuslóðir. Bergur er Grindvíkingur vikunnar á heimasíðunni. Hann heldur úti grindvíska atvinnuleikhúsinu, GRAL, og svo er hann öflugur stuðningsmaður Grindavíkur á íþróttavellinum.
Bergur hefur samið nýtt stuðningsmannalag Grindavíkur sem heitir Ég held með Grindavík og gefið verður út á geisladiski á næstunni ásamt fleiri lögum sem hann hefur samið texta við, auk þess verða eldri stuðningsmannalög á diskinum.
Bergur fór í stúdíó um helgina ásamt knattspyrnuliði Grindavíkur og tók upp lögin. Að sögn Bergs gengu upptökurnar framar vonum en þær fóru fram í Geimsteini í Keflavík. Bergur svaraði nokkrum spurningum heimasíðunnar:
Nafn? Bergur Þór Ingólfsson, Júlíussonar, Daníelssonar frá Brautarholti.
Fjölskylduhagir? Eiginkona er Eva Vala Guðjónsdóttir. Dæturnar Nína Rún, Urður, Áróra og Emilía.
Starf? Leikari, leikstjóri og leikskáld.
Uppáhalds-
...maturinn? Aðfangadagskvöldmáltíðin er alltaf best - helst má það vera rjúpa.
...drykkurinn? Ísköld mjólk eða ískaldur bjór, það fer eftir tilefninu.
...staðurinn? Þegar fjölsyldan mín er glöð og áhyggjulaus, þá líður mér vel og er nokk sama hvar ég er en Arnarstapi hefur alltaf sérstök áhrif á mig. Grindavíkurhraunið finnst mér fallegt og að horfa á hafið úr Bótinni.
...leikarinn? Siggi Sigurjóns.
...leikritið? Horn á höfði, leikritið sem við erum að skrifa fyrir GRAL þessa dagana er í sérstöku uppáhaldi hjá mér núna.
...íþróttamaðurinn? Sergeij Bubka, stangastökkvarinn sem er hættur en á hæstu fimm stökk sögunnar.
...liðið? U.M.F.G.
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Ég vil ekki hlutgera ástvini mína en Eva, Nína, Urður, Áróra og Emilía yrðu að koma með mér. Ef það er bannað að segja svona, þá vel ég tölvu, Biblíuna, Safn með verkum Dostojevskís, Safn með verkum Shakspeare og grill.
Hvað er best við Grindavík? Vinir mínir og fjölskylda. Mér finnst líka til fyrirmyndar að börn fái frítt frístundastarf. Náttúran, hafið og hraunið. Það er ótrúlega best hvað GRAL hafi verið vel tekið og það skuli vera vilji til þess að við séum með leikhús þarna.
Hvernig kviknaði þessi hugmynd að nýju Grindavíkurlagi? Hún byggir á eigin reynslu. Ég ákvað fyrir tveimur árum að læra á gítar og þegar ég var búinn að fara á netið og læra nokkur grip, þá bara kom þetta.
Hvernig lýst þér á sumarið í boltanum? Ég hef trú á Grindavík í sumar. Við verðum að halda áfram að vinna útileikina og bæta okkur í heimaleikjum. Ef allir læra stuðningslögin mín og syngja og syngja í stúkunni þá eiga hin liðin ekki séns.
Eitthvað að lokum? Eins og segir í laginu: ... að velja rétt og halda með Grindavík. Ég held með Grindavík!!!!
Hér fylgir svo textinn á nýja Grindavíkurlaginu.
ÉG HELD MEÐ GRINDAVÍK.
Einu sinni spurði ég pabba
hvað hann teldi vera dyggð.
Hann sagði: ,,Það þykir mér göfugt
að þjóna sinni heimabyggð."
Stuttu síðar spurði ég mömmu
um það versta sem gæti skeð.
Hún sagði: ,,Allt verður í besta
bara ef þú veist hverjum þú heldur með."
Og ég held með
GRINDAVÍK, GRINDAVÍK.
Ég held með - GRINDAVÍK.
Það mælti mín móðuramma
er ég mætti á hennar dánarbeð:
,,Þú munt eiga ævina skamma
ef þú manst eftir að halda með - GRINDAVÍK.
Einhverntíma eignast ég börn,
nokkur agnarlítil peð.
Það verður þeim í lífinu vörn
að velja rétt og halda með.
Ég held með
GRINDAVÍK, GRINDAVÍK.
Ég held með
GRINDVÍK.
Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
