Fyrirtæki vikunnar: Dagný Erla með hómópatameðferð
Fyrirtæki vikunnar: Dagný Erla með hómópatameðferð

Ekki fer mikið dags daglega fyrir fyrirtæki vikunnar. Dagný Erla Vilbergsdóttir hefur opnað stofuna GERO að Vesturbraut 8 í Grindavík þar sem hún býður upp á hómópatameðferð en hún er lærður hómópati. Margir spyrja sig hvað slík meðferð sé?

Hómópatía er heildræn meðferð. Hver manneskja er meðhöndluð á einstaklingsbundinn hátt og er unnið að því að virkja lækningamátt hennar eigin líkama. Hómópatía er meðferð sem byggist á reglunni um að ,,líkt lækni líkt". Það felur í sér að efni sem framkallar sjúkdómseinkenni í heilbrigðum einstaklingi getur læknað sömu einkenni í sjúkum einstaklingi. Efnin eru mikið þynnt þannig að í raun er ekki lengur talað um þau sem eiginleg efni heldur hvata, útskýrir Dagný Erla.

Meðferð hjá hómópata byggist á viðtölum þar sem einstaklingurinn greinir frá líkamlegu, andlegu og tilfinningalegu ástandi sínu. Þannig er leitast við að kortleggja einstaklinginn til að finna remedíu(r) sem gagnast við að koma jafnvægi á orkukerfi hans. Sjúkdómar myndast þegar orkukerfið er í ójafnvægi en það getur stafað af ýmsum orsökum.

Remedíur eru heiti yfir hvatana eða örefnin sem Hómópatar nota til meðferðar. Þær eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu. Remedíur eru með öllu skaðlausar og valda ekki aukaverkunum.

Dagný Erla nam hómópatíu á árunum 2002 til 2006 við ,,The Homeopathy College" sem staðsettur er í Birmingham á Englandi, en þeir sinna kennslu á Íslandi.

Dagný Erla hefur einnig lokið B.Ed. kennaramenntun frá Kennaraháskóla Íslands og námi í Náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt kennslu í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Grindavík og starfaði sem náms- og starfsráðgjafi við Menntaskólann við Hamrahlíð og í Grindavík.

Dagný Erla býður upp á hómópatameðferð. Hún vinnur einnig með SCIO mælingar- og meðferðartæki sem er háþróað tæki til að meta ástand hvers og eins og til meðhöndlunar.

Tímapantanir eru í síma 698 2977, netfangið er dagnyerla@simnet.is

Nýlegar fréttir

fim. 9. feb. 2012    Starf aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Laut í Grindavík
fim. 9. feb. 2012    Samskiptadagar í Grunnskólanum
fim. 9. feb. 2012    Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012
fim. 9. feb. 2012    Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur
mið. 8. feb. 2012    Svavar Knútur á Bryggjunni
mið. 8. feb. 2012    Mikið um að vera í körfuboltanum
mið. 8. feb. 2012    Veiðarfæraþjónustan og Besa framúrskarandi fyrirtæki
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Salthúsinu
mið. 8. feb. 2012    Þorrablót á Veitingastofunni Vör
þri. 7. feb. 2012    Námskeið í skyndihjálp í sundlauginni
þri. 7. feb. 2012    Hestadagur Brimfaxa á laugardaginn
þri. 7. feb. 2012    Afhentu plakat í tilefni dags leikskólans
þri. 7. feb. 2012    Viltu taka þátt í menningarvikunni? Ertu með ábendingar?
þri. 7. feb. 2012    Verkalýðsfélag Grindavíkur 75 ára - Afmæliskaffi á sunnudaginn
þri. 7. feb. 2012    Bullock valinn besti leikmaður 14. umferðar
þri. 7. feb. 2012    Framhaldsaðalfundi frestað um viku
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Hagnýtt saumanámskeið
mán. 6. feb. 2012    Opið hús hjá Þórkötlu
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Námskeið í svæðanuddi
mán. 6. feb. 2012    MSS í Grindavík - Fyrirlestur um SUSHI
mán. 6. feb. 2012    Finndu eldmóðinn - Spennandi námskeið í MSS í Grindavík
mán. 6. feb. 2012    Lasse Qvist semur líklega við Grindavík í vikunni
mán. 6. feb. 2012    Bókasafnið gefur út upplýsingabækling
mán. 6. feb. 2012    Dagur leikskólans
mán. 6. feb. 2012    Nýr vinnslubúnaður hjá Vísi