500. fundur
Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur
haldinn á skrifstofu byggingarfulltrúa,
mánudaginn 27. apríl 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigurður Ágústsson, Ólafur Guðbjartsson, Unnar Á Magnússon, Björgvin Björgvinsson. Einnig sat fundinn Sigmar B. Árnason byggingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ingvar Þ. Gunnlaugsson , Forstöðumaður Tæknideildar
Dagskrá:
1.0904007 - Endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur
Unnið er að endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkur Starfshópur/nefnd hefur unnið að málinu og leggur nú fyrir nefndina tímaáætlun fyrir endurskoðunina.
Sigurður Ágústsson kynnti fyrir nefndinni stöðuna á endurskoðun aðalskipulags Grindavíkur
2.0903089 - Stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýting jarðhitavökva. Mat á umhverfisáhrifum.
Samkvæmt 10 gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. óskar Skipulagstofnun eftir umsögn Grindavíkurbæjar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Umsagnaraðilar skulu gefa álit sitt í samræmi við 22. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Að mati nefndarinnar eru sveitarfélagsmörk milli Grindavíkurbæjar og Reykjanesbæjar frá Vaðlahnjúk að Sýrfelli röng sbr. kortamöppu úr frummatsskýrslu unnin af VSÓ ráðgjöf. Því má telja að það þurfi að vinna breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur vegna borteigs við borholu RN-17.
3.0901025 - Ósk um umsögn varðandi hugmyndir um verslunar og skrifstofuhúsnæði ásamt bensínstöð við Víkurbraut
Grindin kt. 610192-2389 óskar eftir umsögn varðandi tillögu að 1. áfanga byggingar að verslunar og þjónustuhúsnæði ásamt bensínstöð við Víkurbraut 64 samkv. teikningum frá TARK dags.
Nefndin tekur vel í erindið
4.0904078 - Breyting á aðalbrautarrétti á Laut og Dalbraut
Skipulags-og bygginganefnd leggur til við bæjarstjórn að fá samþykki lögreglustjórans á Suðurnesjum að aðalbrautarréttur verði á Laut og Dalbraut. Biðskyldumerki verði sett upp við botlanga frá húsum nr. Laut 16, 14, 12. 10. Í dag er hægriréttur við þessa botlanga. Biðskyldumerki verði sett á útkeyrslu frá húsunum nr. 5 og 7 við Dalbraut inn á götuna. En Víkurbraut njóti aðalbrautarréttar gagnvart Dalbraut og biðskyldumerki verði sett upp við Dalbraut.
Lagt er til að hámarkshraði við Dalbraut og Laut verði 30km.
5.0904080 - Umsókn um byggingarleyfi
Magnús Eiríkur Arthúrsson sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Borgarhrauni 2. Sjá teikningar frá VSS dags. 21.04.09.
Nefndin samþykkir erindið
6.0904079 - Umsókn um stækkun lóðar
Óskað er eftir að sameinna lóðina Hólmasund 3 við Bakkalág 15 ásamt hluta af lóðunum Bakkalág 17 og Hólmasund 3.
Nefndin samþykkir erindið
7.0903017 - Efnistaka úr Háuhnúkum við Vatnsskarð í Grindavíkurbæ (Vatnsskarðsnáma)
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við frummatsskýrslu um mat á umhverfisþáttum framkvæmdarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________