Heimasíðan ætlar að kynna eitt fyrirtæki í Grindavík í viku hverri. Í bænum eru bæði rótgróin og nýleg fyrirtæki og verða þau kynnt jöfnum höndum. Fyrsta fyrirtækið sem verður kynnt er Fjórhjólaævintýri ehf. sem stofnað var í ágúst 2007. Eigendur eru Jakob Sigurðsson, Kjartan Sigurðsson og Sigurður Óli Hilmarsson.
Fyrirtækið var stofnað eftir langa umhugsun hjá þremenningunum. ,,Eftir mikinn undirbúning ákváðum við að stökkva út í djúpu laugina. Við fórum rólega af stað en fyrstu viðskiptavinirnir okkar voru ánægðir og það spurðist út. Við gátum því farið að markaðssetja okkur betur og núna erum við búnir að fara með yfir 2500 manns í fjórhjólaferðir og aðra afþreytingu. Þetta eru starfsmannahópar, steggjahópar, vinahópar, fjölskyldur og erlendir ferðamenn. Við höfum tekið á móti töluvert af fréttamönnum, ferðaskrifstofum og kvikmyndafólki og farið með það í kynningarferðir um svæðið. Þar má nefna fréttamenn frá Discovery Channel Scanout í Noregi og fleiri," segir Sigurður Óli.
Fjórhjólaævintýri hafa gert samning við eitt stærsta rútufyrirtæki landsins, Allrahanda. Er fyrirtækið byrjað að kynna fjórhjólaferðirnar um allan heim. Þá er þetta grindvíska fyrirtæki komið með beina sölu til Danmerkur og Bretlands. Einnig er samvinna í gangi við jeppafyrirtæki ásamt fjölda ferðaskrifstofa. Þá hafa þremenningarnir stundað nám við Mennaskóla Kópavogs til þess að efla gæði, þekkingu og þjónustu í fyrirtækinu.
,,Við ákváðum að stofna fyrirtækið af því okkur fannst vanta meiri afþreyingu fyrir ferðamenn á svæðinu. Við bjóðum upp á þrjár grunnleiðir á fjórhjólunum, frá einni klukkustund og upp í þrjár. Þá bjóðum við heildarlausnir fyrir hópa, starfsmannaferðir og árshátíðir, svo eitthvað sé nefnt. Einnig er vinsælt að hringja í okkur og við sjáum svo um einn pakka þar sem má nefna rútu, mat, sund, Bláa lónið, hópeflisleiki, dans, hestaferðir, hellaferðir, klifur, hjólaferðir, fundasalir, gistingu og fleira," segir Jakob.
Þeir segja að fyrirtækið hafi farið vel af stað og segja ferðirnar settar þannig upp að þær séu skemmtilegar og í samlyndi við náttúruna.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið er á http://www.atv-adventures.com/

Bryndís Gunnlaugsdóttir (B)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Þórunn Erlingsdóttir (B)
Guðmundur L. Pálsson (D)
Kristín María Birgisdóttir (G)
Dagbjartur Willardsson (G)
Páll Valur Björnsson (S)
