Dags. 3. desember 2008
Atvinnu- og ferðamálanefnd
Fundur haldinn í Saltfisksetrinu kl 20:00
1. Yfirfara drög að reglum vegna aðkomu bæjarins að atvinnuuppbyggingu.
• Nefndinni leist vel á að regluverk í atvinnuuppbyggingu verði samið. Einnig
að vönduð og útsjónarsöm vinna verði lögð í að laða að ný fyrirtæki eftir öllum
mögulegum leiðum.
• Nefndin var ekki á því að bæjarfélagið láni peninga til fyrirtækja. Skilgreina
þarf betur og helst að finna aðrar leiðir til að aðstoða fyrirtæki sem lenda í
fjárhagserfiðleikum, t.d með niðurfellingu á gjöldum.
• Ef Grindavíkurbær kaupir hlutafé í fyritæki á ákvörðunin um hlutaféð að
hámarki 10-20% eftir umfangi fyritækis að ákvarðast af áhættumati sem unnið er
af sérfræðingum. Skynsamlegar fjárfestingar í fyritækjum eru þær sem skapa eða
viðhalda atvinnu til skamms eða langs tíma. Vinna við áhættumat á fjárfestingum
þarf að vera í réttu hlutfalli við ætlaða fjárfestingu til að tryggja fjármuni
Grindvíkinga sem allra best.
• Reglurnar eru mjög opnar. Skilgreina þarf betur hvernig umsóknir verða meðhöndlaðar
og metnar sem tengjast þessu regluverki.
• Formanni var falið að ræða við bæjarstjóra til að fá nákvæmari skilgreiningar
um drögin sem hjálpa til við að fullmóta reglurnar á næsta fundi.
• Nefndin mun leggja sitt af mörkum við mótun reglugerðarinnar sem eiga fyrst
og fremst að laða að fyrirtæki sem hefja starfssemi í bænum og einnig þau sem
geta lent í tímabundnum erfiðleikum út af efnahagssástandinu.
2. Þorskseiðeldi – Kynningafundur
• Nefndin stefnir að því að bjóða þingmönnum, Sjávar- og landbúnaðarráðherra
og fleirum á kynningu vegna fyrirhugaðar þorskseiðaeldisstöðvar sem á að rísa
á Íslandi.
• Markmiðið með fundinum er að kynna þessum aðilum þá staðreynd að mikil þekking
og reynsla er á þessu svæði í þorskseiðaeldi sem er nauðsynlegur styrkur í fyrirhugaðari
þorskseiðaeldisstöð eins að aðstæður og umgjörð fyrir slíka starfssemi eru eins
og best verður á kosið hér í Grindavík.
3. Fundir með forsvarsmönnum úr atvinnulífinu í Grindavík
• Bæjarstjórn boðaði til fundar með forsvarsmönnum úr atvinnulífinu og var fjölmenni
á öllum fundunum. Nefndin fékk margar hugmyndir og einnig upplýsingar um stöðu
mála hjá atvinnurekendum í Grindavík.
• Nefndin leggur áherslu á að unnið sé hratt en örugglega að móta aðgerðaráætlanir
sem hægt væri að grípa til ef að þess þyrfti. Einkum þrennt kom fram á fundum
með forsvarsmönnum úr atvinnulífinu í Grindavík þar sem um 200 íbúar bæjarins
mættu á
• 1. Mikilvægt væri að bæjaryfirvöld í Grindavík beittu öllum sínum þunga við
viðeigandi yfirvöld s.s. vegagerðina, Samgöngumálaráðherra og þingmenn kjördæmissins
að framkvæmdir við Suðurstrandarveginn verði kláraðar. Þetta er gríðaleg mikilvæg
tenging fyrir íbúa og atvinnustarfssemi í Grindavík og leggur nefndin mikla áherslu
á að þessi vegur verði kláraður á næsta ári.
• 2. Ákvörðun um aukningu á fiskveiðikvóta verði tekin strax í byrjun janúar
2009. Skorar atvinnu- og ferðamálanefnd í Grindavík á sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra
og Hafró að endurskoða að auka kvóta strax. Sérstaklega með það til hliðsjónar
hvernig ástandið í þjóðfélaginu er í dag. Þetta gæfi nauðsynlega innspýtingu í
atvinnulífið.
• 3. Bærinn ráðist í mannaflsfrekar framkvæmdir s.s viðhaldsverkefni á eigum
bæjarins, vatnslagnir endurnýjaðar o.fl. Voru menn á einu máli að gætt verði jafnræðis
við útdeilingu á verkefnum og að taxtar verktakar verði innan skynsamlegra marka.
Fundi slitið kl 21:00
Fundin sátu
Jakob Sigurðsson
Ingimar waldorf
Sigurður A Kristmundsson
Jovana Lilja Stefansdóttir
Óskar Sævarsson